
Sigurjón Magnús Egilsson ritstjóri Miðjunnar:
Stór ísnesk útgerðarfyrirtæki eiga fiskvinnslu fyrirtæki innan ESB. Hagur þeirra er ekki síst sá að hafa tekjur í evrum en gera upp í krónum. Það er ekki hagur okkar hinna.
Það er sama hvaða fólk er gengið í nýjan hóp fólks sem ætlar að segja nei í kosningunum þann 29. ágúst síðsumars. Þó Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti, ber þar hæst. Hef verið málkunnugur honum í áratugi.
Ég er sannfærður um að segja já í kosningunum. Ekki vegna þess að ég sannfærður um að rétt sé að ganga í Evrópusambandið. Ég vil sjá hver niðurstaða kosninganna verður. Fyrr get ég ekki gert upp huga minn.
Margt þjóðþekkt fólk er sammála forsetanum fyrrverandi. Það er bara ágætt og er bara svona. Ég held, án þess endilega að vita það, að drjúgur hluti þess fólk sem ætlar að segja nei vegna hagsmuna. Jafnvel mikilla hagsmuna.

Þar stendur útgerðarfólk framarlega eða fremst. Þá bak við tjöldin. Stór ísnesk útgerðarfyrirtæki eiga fiskvinnslu fyrirtæki innan ESB. Hagur þeirra er ekki síst sá að hafa tekjur í evrum en gera upp í krónum. Það er ekki hagur okkar hinna.
Það er merkilegt að sjá hvaða fólk er í hópi NEI-sinna. Fólk sem stendur framarlega og jafnvel fremst í félögum launafólks og einnig fólk sem situr jafnan hinum við borðið þegar samið er um kaup og kjör. Merkileg blanda.
Ég er á móti verðtryggingunni og bendi á grein Þrastar Ólafssonar sem meðal annars er að finna hér á Miðjunni. í greininni segir Þröstur m.a. „Flotgengi mun viðhalda verðtryggingu á einn eða annan hátt.“
Eins skrifar Þröstur Ólafsson: „Því verðum við að grannskoða stöðu okkar sem smáríkis úti í miðju ballarhafi. Við þurfum að búa okkur nýtt heimili meðal þjóða.“ Ég vil meðal annars sjá hvernig þessu verður fyrirkomið í væntanlegum inngöngusamningi.
(Þrátt fyrir afstöðu mína mun afstaða beggja fylkinga fá rúm á Miðjunni.)