Ljóst er af þessu að Guðrún lítur Miðflokkinn hörðum augum. Staða flokkanna er afar ólík. Stuðið er hjá Miðflokknum – alls ekki hjá Sjálfstæðisflokki.

Lífið leikur ekki við forystfólk Sjálfstæðisflokksins þessa dagana. Nýrri forystu virðist ekki takast að stöðva flótta stuðningsmanna flokksins yfir til annara flokka, greinileg helst til Miðflokksins.
„Við sjáum það að margt fólk er einhvern veginn óánægt með stöðu sína. Sú óánægja brýst svolítið fram í því að fólk horfir til liðins tíma, til horfinna tíma, og Miðflokkurinn hefur keyrt á því og því slagorði: „Gamla góða Ísland, bara betra.“ Þetta minnir óneitanlega á slagorð sem hefur verið mikið notað síðustu ár í Bandaríkjunum.“ Þetta sagði Guðrún í kvöldfréttum Sýnar í gærkvöld.
Guðrún treystir ekki síst á fortíðina: „Við vitum það að við höfum góða sögu að segja og við höfum einmitt líka góða stefnu. Sjálfstæðisflokkurinn er svona klassískur markaðssinnaður íhaldsflokkur á meðan Miðflokkurinn er afturhaldssamur þjóðernisflokkur. Við höfum alla tíð lagt áherslu á frelsi einstaklingsins, lága skatta, eins lítil ríkisafskipti og lágar álögur og hægt er og öflugt atvinnulíf en einnig líka alþjóðaviðskipti og vestræna samvinnu og það mun Sjálfstæðisflokkurinn leggja höfuðáherslu á hér eftir sem hingað til.“
Ljóst er af þessu að Guðrún lítur Miðflokkinn hörðum augum. Staða flokkanna er afar ólík. Stuðið er hjá Miðflokknum – alls ekki hjá Sjálfstæðisflokki. Guðrúnu getur ekki annað en liðið illa þegar fylgið mælist aðeins 13,5 prósent. Til gamans má geta þess að þegar Davíð Oddsson bauð sig fram til forseta og bauðs til að vinna kauplaust, fékk hann 13,7 prósent. Fyrir ekki svo löngu síðan var víðast talið óhugsandi að Sjálfstæðisflokkurinn færi niður fyrir það lága fylgi.
Með Guðrúnu í æðstu stjórn Sjálfstæðisflokki eru þeir Jens Garðar Helgason varaformaður og Vilhjálmur Árnason ritari flokksins.
-sme