- Advertisement -

Síldarvinnslan lokar öllu á Seyðisfirði

Gullver NS áður en Síldarvinnslan keypti hann og seinni myndin er tekin eftir kaupin.

Útgerð: Síldarvinnslan í Neskaupstað keypti Gullver NS í Seyðisfirði með loforði um áframhaldandi útgerð og fiskvinnslu á Seyðisfirði. Nú er búið að loka fiskvinnslunni og bræðslunni og útgerð Gullvers er eða verður hætt. Þar tapast mörg góð heilsársstörf í Seyðisfirði.

Í frétt á rúv, segir:

„Forstjóri Síldarvinnslunnar segir ákvörðun um að loka fiskimjölsverksmiðjunni á Seyðisfirði hafa verið þungbæra. Fyrirtækið sé reiðubúið að skoða aðkomu að skynsamlegum verkefnum til að efla atvinnulíf í bænum en geti ekki verið leiðandi í slíku.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Síðar í fréttinni segir:

„Orsakir hennar séu ýmsar, til að mynda samdráttur í aflaheimildum, hækkandi kostnaðarliðir og erfiðara rekstrarumhverfi.

„Að sjálfsögðu gerum við okkur grein fyrir áhrifum á samfélagið og höfum áhyggjur af því.“ Ákvörðun um að loka fiskimjölsverksmiðjunni í Seyðisfirði hafi ekki verið léttvæg.

Síldarvinnslan ætlar að greiða fyrir kostnað við störf ráðgjafa sem til stendur að vinni með Múlaþingi næsta árið við að fara yfir viðskiptahugmyndir um framtíðarstarfsemi í húsum félagsins í Seyðisfirði.“

Hér má lesa alla frétt Ríkisútvarpsins.

Á ekki löngum tíma hefur Síldarvinnslan keypt útgerð Vestmannaeyjar VE og Bergeyjar VE í Vestmannaeyjum, Vísi í Grindavík með húð og hári og svo Gullverið og fiskvinnsluna í Seyðisfirði. Kannski meira þó ég viti það ekki.

-sme


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: