- Advertisement -

Er ríkisstjórnin hrædd við ríka fólkið?

Sigurjón Magnús Egilsson skrifaði:

Þórður Snær Júlíusson skrifaði um verk fyrri ríkisstjórnar:

„Samhliða voru milljarðar færðir til þeirra sem þurftu minnst á þeim að halda með skattalækkunum, ívilnunum og stuðningskerfum.“

Það var svo sem ekki ókeypis. Núverandi ríkisstjórn sér ekki ástæðu til að sækja á þau sem fengu. Því miður. Ekki er fjármagnstekjuskattur hækkaður, ekki er sett útsvar á fjármagnstekjurnar, hvar eru stóreignaskattar eða eitthvað sem getur með einhverju móti sótt til baka það sem þarf að borga vegna þess sem gert var.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Er ríkisstjórnin hrædd við ríka fólkið? Tilheyrir hún kannski því fólki?

Skiptum aftur yfir í Kjarnyrt Þórðar:

„Þar sem þetta skipulagða niðurrif samfélagsgerðarinnar til að koma fjármunum á „rétta“ staði til skamms tíma var að uppistöðu greitt með skuldasöfnun hefur vaxtabyrði ríkissjóðs margfaldast. Árið 2021, þegar ríkisstjórn íhaldsafla og kyrrstöðu hóf sitt síðara kjörtímabil, greiddi ríkið 59 milljarða króna í vexti af lánum. Í ár var sú tala komin upp í 168 milljarða króna. Hún hefur þrefaldast. Ímyndið ykkur hvað væri hægt að gera fyrir velferðina, menninguna og innviðina fyrir 109 milljarða króna sem færu ekki í slíka vaxtahít.“

Gott og vel. Blaðinu er sem sagt snúið við. Nú þarf ríkissjóður að ná til sín meiri peningum. Hvað er gert? Komugjöld í heilbrigðisþjónustunni eru hækkuð, önnur sett á, vegatollar verða hér og þar, kílómetragjald hækkað og eflaust ýmislegt fleira. Til að mynda eru vaxtabætur stórskertar. Hvaða fólk tapar á því?

Öll þessi gjaldtaka er flatur skattur. Allir borgi jafn margar krónur. Þau sem berjast í bökkum til að halda lífi sínu gangandi og svo þau sem nutu sem mest og best aðgerða fyrri ríkisstjórnar.

Þórður Snær skrifaði: „Íslenska ríkið var rekið með 866 milljarða króna uppsöfnuðum halla frá 2019, innviðir látnir grotna niður og vaxtareikningur ríkissjóðs þrefaldaðist.“

Snúa þarf blaðinu við, en án þess að hróflað sé við þeim ríkustu. Samt á hinn venjulegi Íslendingur að borga jafn margar krónur og þau sem aka um á tug milljóna bílum, búa í mörg hundruð milljóna húsum og það sem meira er. Leiðin þeirra er ennþá greið. Gerið svo vel.

Heimili þeirra ríku þurfa ekki að leita leiða þegar bankarnir bregðast við hærri bankaskatti með hærri vöxtum. Það þarf annað fólk að gera. Fólkið sem skuldar. Hinir sitja sælir á sínu. Áhyggjulausir. Í boði fyrri ríkisstjórna sem og þessarar sem nú situr.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: