- Advertisement -

Ingibjörg með ótvíræða forystu

Sigurjón Magnús Egilsson:

Hvað sem verður, er staðan Ingibjargar Isaksen sterkust og það umtalsvert. Mestu skiptir að hún er á Alþingi.

Ritstjórn:

Ingibjörg Isaksen á mesta möguleika allra til að verði næsti formaður Framsóknarflokksins. Í umræðunni hafa þau Lilja Alfreðsdóttir, varaformaður flokksins, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, verið með áberandi.

Lilja er jú varaformaður Framsóknar. Vel menntuð og hefur góða ráðherrareynslu. Eðlilega er hún oft nefnd þegar verið er að spá í spilin. Lilja missti þingsætið sitt í síðustu kosningum. Það er stór mínus. Verði hún formaður án þess að eiga sæti á þingi, sem er verra. Að óbreyttu er langt til kosninga.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Willum var ráðherra. En hann, líkt og Lilja, missti þingsætið í síðustu kosningum.

Willum var ráðherra. En hann, líkt og Lilja, missti þingsætið í síðustu kosningum. Það er mínus. Ég held að Sigurður Ingi núverandi formaður myndi helst vilja að Willum Þór tæki við formennskunni. Það gengur varla. Einkum vegna þess að hann er utan þings og að auki er hann nýkjörinn forseti ÍSÍ. Sigraði þar með yfirburðum í forsetakosningum þar. Emmætti forsea ÍSÍ er nú launað starf, í fyrsta sinn. Mér kæmi á óvart ef hann yfirgefur ÍSÍ til að freista þess að verða formaður Framsóknar.

Ingbjörg er þingflokksformaður Framsóknar og hefur verið það frá því hún var fyrst kjörin á þing, það er frá 2021. Af þessum þremur hefur Ingibjörg ótvírætt forskot, sitjandi á þingi. Og það sem meira er staða Framsóknar er best í norðsuturkjördæmi þar sem Ingibjörg er leiðtogi Framsóknar.

Willum er elstur þeirra þriggja, fæddur 1963, Lilja 1973 og Ingibjörg 1977.

Staða Ingibjargar er best. Eflaust munu þau öll fá hvatningu um framboð. Hvað sem verður, er staðan Ingibjargar Isaksen sterkust og það umtalsvert. Mestu skiptir að hún er á Alþingi.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: