- Advertisement -

Guðrún Hafsteinsdóttir og Jens Garðar

Stjórnmál:

Hin nýja forystusveit Sjálfstæðisflokksins hefur valdið mörgu flokksfólki sárum vonbrigðum. Staða flokksins er verri nú en nokkru sinni. Það er ekki bara Samfylkingin sem hefur stungið Sjálfstæðisflokkinn af. Miðað við síðustu kannanir hafa Viðreisn, í einni könnun, farið framúr Sjálfstæðisflokknum og í nýjustu könnun er það svo Miðflokkurinn sem stekkur vel yfir Sjálfstæðisflokkinn. Bæði flokkur sem hýsa fólk sem áður voru í Sjálfstæðisflokki.

Hin nýja forystu boðað til áríðandi fundar. Fundarefnið lak ekki út svo fólk mætti ekki síst af forvitni um hver hinn nýji boðskapur væri. Vonbrigði. Forystusveitin sagði fátt og kannski ekkert nýtt. En vissulega gamalt.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Guðrún Hafsteinsdóttir formaður boðaði að fara aftur í söguna. Sækja stefnumál til fortíðar flokksins. Eðlilega kyngdu ekki öll þessu. Fólk lét samt á litlu bera. Hvort Guðrún vilji fara aftur til ársins 1929, árið sem flokkurinn var stofnaður er ekki vitað. Það má lesa um það í færslunni hér að framan.

Fyrir Sjálfstæðisflokkinn er staðan hreint ömurleg. Þau sjá ekki í hæla Samfylkingarinnar og hafa misst Viðreisn, og núna Miðflokkinn, fram úr sér. Samkvæmt síðustu könnunum virðist gamli valdaflokkurinn dæmdur í þriðja sæti.

Verði ekki snögg breyting á má allt eins gera ráð fyrir að ósætti og kurr muni aukast innan flokksins.

Hvað mun verða gert? Eitthvað verður það.

Sigurjón Magnús Egilsson.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: