- Advertisement -

Glæpur sem aldrei var framinn

Hann er líka alveg einstaklega viðkunnanlegur maður, réttsýnn, hjálpsamur og traustur með góðan vilja. Góður kall, eins og margir hafa gjarnan sagt um hann.“

Jón Gnarr.

Umræðan: Mikið hvað ég get tekið undir með Jóni Gnarr það sem hann skrifaði um tilurð afsagnar Guðbrands Einarssonar, fyrrum þingmanns Viðreisnar. Hér er hluti greinar Jóns Gnarr:

Fyrir nokkrum vikum var ég, ásamt öðrum þingmönnum og ráðherrum Viðreisnar, boðaður á óvæntan þingflokksfund. Ég vissi að eitthvað var ekki með felldu en hvað það var nákvæmlega vissi ég ekki. Ég hef einu sinni áður setið svona neyðarfund og þá var það til að upplýsa okkur um fyrirhugaða afsögn ráðherra í ríkisstjórninni. Ég velti því auðvitað fyrir mér hvort hugsanlega væru einhverjir erfiðleikar í ríkisstjórnarsamstarfinu, ágreiningur eða missætti, jafnvel einhverjar mannabreytingar í brúnni. Mér brá því óneitanlega þegar okkur var tilkynnt hver væri raunveruleg ástæða þessa fundar. Einn af þingmönnum Viðreisnar, maður sem ég hafði unnið náið með og líkaði einstaklega vel við, hafði orðið uppvís að því að hafa ætlað að eiga viðskipti við vændiskonu. Þetta var ekki nýskeð heldur voru 12 ár liðin frá því að þetta átti að hafa gerst, eða ekki gerst. Ég hafði ekkert heyrt um þetta og þetta kom mér reglulega á óvart. Ég kynntist þessum þingmanni í kosningabaráttunni, kunni strax vel við hann og við urðum ágætir félagar. Hann er líka alveg einstaklega viðkunnanlegur maður, réttsýnn, hjálpsamur og traustur með góðan vilja. Góður kall, eins og margir hafa gjarnan sagt um hann.“

„Mér brá auðvitað að heyra þetta og allt hringsnerist í höfðinu á mér. Ég komst í tilfinningalegt uppnám, var sorgmæddur en líka reiður og ringlaður. En fyrst og fremst fannst mér þetta ósanngjarnt. Hvað kemur það einhverjum við hvað hann og einhver kona eru að ræða saman? Það var enginn glæpur framinn. Samkvæmt upplýsingunum þá var hann með einhverskonar óskýra áætlun um að eiga viðskipti við vændiskonu en snerist hugur áður en til kastanna kom. Það var því enginn gjörningur, ekkert fórnarlamb eða nokkur manneskja sem varð fyrir neinum skaða. Að því best ég veit. Samkvæmt því sem ég kemst næst þá hefur lögreglan líklega verið að hlera samskipti þessarar konu við einhverja menn og í framhaldi af því boðað hann til yfirheyrslu. En hann var ekki handtekinn eða ákærður fyrir neitt enda heldur ekki brotið neitt af sér. Nú þekki ég ekki málavöxtu, rannsóknaraðferðir eða löggjöfina nægilega vel en mér sýnist á öllu, eða hef að minnsta kosti ekki enn þá séð neitt sem bendir til þess að hann hafi framið afbrot. Ég er nú búinn að velta þessu fyrir mér fram og aftur og ræða við ýmsa. Það er mér ofviða að leggja dóm á þetta. En þetta hvílir ekki vel í mér. Mér finnst þetta ósanngjarnt. Eiginlega bara mannvonska.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eiginlega bara mannvonska.

Þessi ákvörðun var ekki forystumönnum og starfsfólki að kenna. Við vorum bara sett í þessa stöðu. Góður maður, sem hefur lifað nokkuð flekklausu lífi og hefur haft góðan vilja til að láta gott af sér leiða í lífinu neyðist til að enda sinn pólitíska feril með þessum niðurlægjandi hætti. Mér finnst ég stundum búa í mannfjandsamlegu landi þar sem hinn siðprúði meirihluti, í krafti fjöldans og með óttann að vopni, getur fellt huglæga dóma þar sem menn eru niðurlægðir, sviptir æru sinni, atvinnu og lifibrauði og jafnvel útskúfaðir. Hvað dómarnir eru harðir eða langir virðist fara eftir geðþótta og samfélagsstemningu. Svert mannorð. Þessi brot eru alltaf af kynferðislegum eða siðferðislegum toga, gjarnan eitthvað sem hefur sært okkar viðkvæmu blygðunarkennd þannig að okkur misbýður. Og þarna skiptir engu máli hvort menn eru heilir á geði, fíkniefnaneytendur, undir áhrifum hugbreytandi efna eða þroskaskertir eða hversu langt er liðið frá hinu meinta broti. Við stöndum með fórnarlömbum og trúum þolendum og erum dugleg að lýsa því yfir á samfélagsmiðlum. Afstaða okkar byggir yfirleitt ekki á gögnum máls, staðreyndum eða dómsmeðferð heldur trú. Þarna er líka á ferðinni félagslegur þrýstingur. Og ótti.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: