- Advertisement -

Sama hvað hver segir

Sigurjón Magnús Egilsson ritstjóri Miðjunnar skrifar:

Sjávarútvegurinn er okkur mikilvægur. En hann er ekki allt. Að auki höfum við misst hann frá okkur – að hluta. Stóru íslensku fyrirtækin eru með fiskvinnslur í Evrópu. Þar sem er unninn íslenskur fiskur. Þau hafa flutt hluta af íslenskum sjávarútvegi til landa innan ESB.

Mér er sama hvað hver segir um kosti og galla umsóknar að Evrópusambandinu. Ég mun segja já í kosningunum þann 29. ágúst. Ekki vegna þess að ég sé sannfærður um að við eigum að ganga í ESB. Bara alls ekki.

Eðlilega veit ég ekki fyrir víst hvers er að vænta. Mig dreymir um að við komust út úr bankaokrinu, smásöluokrinu, bensínokrinu og öllu hinu sem hefur þrifist hér fyrir framan nefið á okkur. Ef sá draumur rætist þá mun ég segja já við samningi milli Íslands og Evrópusambandsins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Sjávarútvegurinn er okkur mikilvægur. En hann er ekki allt. Að auki höfum við misst hann frá okkur – að hluta. Stóru íslensku fyrirtækin eru með fiskvinnslur í Evrópu. Þar sem er unninn íslenskur fiskur. Þau hafa flutt hluta af íslenskum sjávarútvegi til landa innan ESB.

Að auki eru það flest, ef ekki öll, í erlendum viðskiptum og það með evru frekar en krónuna okkar.

Þetta hringsnýst allt saman. Að öllu sögðu vil ég fá að meta stöðuna, sama hver hún verður, að loknum umræðum við ESB. Þar til getur enginn haggað við mér. Ég les greinar eftir þau sem ætla að segja JÁ og eins eftir þau sem ætla að segja NEI.

Sumt finnst mér ekki krónu virði. Annað fær mig til að hugsa. En ekkert fær mig til að segja NEI þann 29. ágúst. Ég vil vita meira áður en ég geri uppi hug minn. Og þætti vont ef annað fólk kemur í veg fyrir að haldið verði áfram. Ég vil fara alla leið.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: