- Advertisement -

Flokkurinn hefur í seinni tíð vanrækt að sinna velferð heimilanna og misst áhugann á verkalýðsmálum

Facebook:

Ragnar Önundarson skrifaði:

Jón Þorláksson, fyrsti formaður Sjálfstæðisflokksins sagði – „Flokkurinn var ekki stofnaður til að örfáir eignuðust allt laust og fast á Íslandi, heldur einmitt til þess gagnstæða, að allir hefðu frelsi til athafna en þó þannig að frelsi eins yrði ekki helsi annarra,“ skrifar Ragnar Önundarson.

„Flokkurinn hefur í seinni tíð vanrækt að sinna velferð heimilanna og misst áhugann á verkalýðsmálum. Séreignarstefnan í húsnæðismálum gleymdist og flokkurinn hætti að sinna VR. Af hverju er enginn „Pétur sjómaður“, enginn „Guðmundur H. Garðarsson“ og enginn „Magnús L. Sveinsson“ í þingflokknum núna? Af hverju koma bæði formaður flokksins og varaformaður úr forystusveit Samtaka atvinnulífsins?

Þú gætir haft áhuga á þessum
Guðjón Jensson og Gunnar Smári.

Gunnar Smári skrifaði um þessi orð Ragnars: „Töskuberum þeirra og svokölluðum rassasleikjum“

„Ástæðan er að flokkurinn tók þá trú að það væru aðeins hin ríku sem væru hreyfiafl framfara, aðrir væru nánast bara byrði á aumingjans ríka fólkinu. Þess vegna samanstendur flokkurinn nú bara af ríkum, töskuberum þeirra og svokölluðum rassasleikjum.“

Guðjón Jensson skrifaði: „Breytir kotbýli í stórbýli“

„Mjög skynsamleg og réttmæt sjónarmið. Áður fyrr átti Sjálfstæðisflokkurinn mikið fylgi til m.a. láglaunafólks sem þóttu sósíalistar vera of halla undir Sovétríkin. Þar voru átakalínurnar. Í Sjálftæðisflokknum voru margir afburða duglegir framkvæmdamenn og má í því sambandi minnast á Magnús bróður Jóns verkfræðings sem gegndi fyrst formennsku í flokknum. Magnús var bóndi á Blikastöðum í Mosfellssveit og breytir kotbýli í stórbýli rétt eins og Thor Jensen með Korpúlfsstaði. Oft reyndi á margt í samskiptum þeirra og eru ýmsar sögur sagðar af glímu þeirra athafnamanna. Thor Jensen bjó síðustu áratugina á Lágafelli. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengi átt mikið fylgi í Mosfellssveit og síðar Mosfellsbæ og má væntanlega fá skýringu á því að 1933 beitir Ólafur Thors sér fyrir því að selja Mosfellshreppi allt heiðarlandið, Mosfellsheiðina innan Kjósarsýslu til hreppsins fyrir einungis 3.500 krónur. Það hefur verið mjög vægt verð þegar það er skoðað að þá var kaup verkamanna rétt rúmlega ein króna á tímann. Árið eftir var Þórbergur Þórðarson dæmdur í 500 króna sekt fyrir að móðga sjálfan kanslara Þýskalands, Adolf Hitler. Mosfellsheiðin tilheyrði áður kirkjuléninu Mosfelli í Mosfellsdal og fyrir 30 árum var ég langt komin með að rita heilmikið rit um þetta en guggnaði á því sem öðru. Glefsur úr því verki hafa birst í ýmsum skrifum mínum hingað og þangað.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: