- Advertisement -

Katrín veldur vonbrigðum

Mynd: Steinunn Ólína.

Steinunn Ólína skrifar:

Forsetakjör Í gær sendu ellefu frambjóðendur kröfu á hendur RÚV um að sama fyrirkomulag verði á síðari kappræðum RÚV svo þjóðin geti á lýðræðislegan hátt fyrirhitt alla frambjóðendur á sömu stundu.

Nú hefur fyrrum forsætisráðherra tekið afstöðu til málsins.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í svari hennar segir, að hún hafi verið ánægð með fyrirkomulag fyrri kappræðna en að hún treysti RÚV fyrir ákvarðanatöku hvað þetta mál varðar.

Hvað birtist okkur hér? Er þetta ekki birtingarmynd þess sem koma skal? Ég lít svo á að hér sjáum við svart á hvítu það sem ég óttast að fyrrum forsætisráðherra verði aldrei ein af okkur. Og að hún muni alltaf taka sér stöðu með valdinu þrátt fyrir óskir fólksins.

Við meðframbjóðendur hennar sem erum ellefu talsins komum úr öllum kimum samfélagsins og erum því þverskurður af almenningi í landinu.

Lifi lýðræðið!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: