- Advertisement -

Margrét dóttir Bjarna fer í framboð

Margrét Bjarnadóttir Benediktssonar fjármálaráðherra sækist eftir fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ við kosningar í vor. Það er mikil pólitík í ætt Margrétar. Benedikt afi hennar Sveinsson var forseti bæjarstjórnar í Garðabæ í umtalsverðan tíma.

Margrét skrifaði eftirfarandi til Garðbæinga.

„Kæru Garðbæingar, ég hef ákveðið að gefa kost á mér 5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ sem fer fram 5. mars næstkomandi.

Ég er þrjátíu ára gömul og bý í Sjálandshverfinu í Garðabæ ásamt kærastanum mínum og syni okkar. Ég er með sveinspróf í matreiðslu og stunda nám við lögfræði í Háskólanum í Reykjavík. Mest alla mína ævi hef ég búið í Garðabæ og vil hvergi annars staðar vera.
Hér gekk ég í leikskóla, grunnskóla og tók stúdentsprófið í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Einnig stundaði ég íþróttir í Stjörnunni og æfði á selló í Tónlistarskólanum í Garðbæ sem barn.

Í mínum huga er mikilvægt að listinn sé samsettur af fjölbreyttu fólki á öllum aldri.
Það er nauðsynlegt að hafa ungt fólk á lista Sjálfstæðisflokksins sem hefur fjölbreytta sýn á samfélagið sem við búum saman í.

Ég legg áherslu á málefni fjölskyldunnar, leikskólamál og húsnæðismál.
Ég er móðir barns á leikskóla og hef mikinn metnað til þess að gera umhverfi og tækifæri barna ásamt starfsumhverfi skólana enn betra. Það eykur lífsgæði fjölskyldna í Garðabæ að hér séu reknir góðir leikskólar og að öll börn hafi tækifæri til að þroska hæfileika sína í félagsstarfi í bænum. Mikilvægi íþrótta- og tómstundastarfs verður seint ofmetið. Lýðheilsurökin eru vel þekkt og jákvæð áhrif fyrir félagsþroska en svo viljum við sjálfstæðismenn að allir fái njóta sín og sinna hæfileika í lífinu. Á þeim grunni þarf að halda áfram að standa með öllu þessu starfi í bænum.
Það er einnig mikilvægt að gera ungu fólki kleift að kaupa sér eign í Garðabæ, það þarf að vera raunverulegur kostur fyrir ungt fólk að búa í Garðabæ. Fjölbreyttar lausnir sem mæta ólíkum þörfum kynslóðanna en ekki síst laða að unga framtíðar Garðbæinga eru lykilatriði.
Það skiptir mig miklu máli að hér sé gott að búa og að við séum sveitarfélag sem tekur vel á móti ungum sem öldruðum.
Mig langar til þess að gera Garðabæ að enn betra sveitarfélagi fyrir fjölskyldufólk og ég hef trú á því að ég eigi erindi í hóp bæjarfulltrúa í Garðabæ. Það eru spennandi tímar framundan og mörg tækifæri til þess að grípa.
Ég óska því eftir stuðningi Garðbæinga í 5. sætið.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: