- Advertisement -

Mútar Framsókn íslenskum fjölmiðlum?

Síðan kemur ríkið og segir fjölmiðlunum hvert dagskrárefnið eigi að vera.

Óðinn Viðskiptablaðsins.

Óðinn Viðskiptablaðsins furðar sig á Framsóknarflokknum.

„Meðan verðbólgan er helsta meinsemdin í efnahagslífinu þá er Framsóknarflokkurinn það í stjórnmálalífinu.

Framsóknarflokknum tókst í síðustu alþingiskosningum að ná undraverðum árangri. Flokkurinn náði 17,3% fylgi og jók það um 6,6% milli kosninga. Í dag mælir Gallup flokkinn með 7,5% og hefur fylgið ekki mælst lægra í þrjú ár.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Alls ætlar ríkisstjórnin að verja 7 milljörðum króna í fjölmiðlun og rekstur fjölmiðlanefndar.

Þetta er auðvitað lofsverður árangur hjá Sigurði Inga og Lilju Dögg. Svar þeirra við þessu fylgishruni er að eyða peningum annarra, bæði skattfé og lánsfé, í enn meiri mæli en áður.

Sigurður Ingi lofaði 900 milljörðum í vegabætur – sem flestar hverjar eru gagnslausar og glórulausar. Utan þess að það verða aldrei til peningar fyrir þeim.

Viðbrögð Lilju eru að gera tilraun til að múta ríkisrekna fjölmiðlinum og einkareknu fjölmiðlunum með enn hærri framlögum,“ skrifar Óðinn og er ekki hættur.

Ríkisfjölmiðlunin

„Í fjárlagafrumvarpinu sem Bjarni Benediktsson kynnti fyrr í mánuðinum fyrir árið 2024 kemur fram að stórauka eigi styrki til fjölmiðla. Og halda áfram að reka ríkissjóð með skíttapi.

Aukningin nemur 669 milljónum króna eða 10,6%. Alls ætlar ríkisstjórnin að verja 7 milljörðum króna í fjölmiðlun og rekstur fjölmiðlanefndar.

Óðinn hefur bent á það í mörg ár að vanda einkarekinna fjölmiðla eigi ekki að leysa með ríkisstyrkjum, heldur eigi að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins sem er lamandi hönd á fjölmiðlamarkaði.“

Sósíalismi Lilju

„En sósíalistinn Lilja Alfreðsdóttir er þessu ósammála. Hún vill handstýra því hvernig fjölmiðlar hegða sér, rétt eins og dagvöruverslanir.

Lilja ætlar að leggja fram frumvarp sem leggur skyldu á fjölmiðlaveitur til að nýta hlutfall af áskriftartekjum sínum til miðlunar menningarverkefna sem stuðli að gerð sjónvarpsefnis á íslensku. Í tilkynningu frá henni segir:

Enn vitlausara er að auka framlögin til einkarekinna fjölmiðla um 52,5%, úr 477 m.kr. í 727 milljónir króna á næsta ári.

„Með frumvarpinu er ætlunin að kveða á um fyrirkomulag um skyldubundið menningarframlag fjölmiðlaveitna sem miðla efni til neytenda hér á landi með því að gera kröfu um að tiltekið hlutfall af áskriftartekjum vegna slíkrar miðlunar renni til menningarverkefna sem stuðli að gerð sjónvarpsefnis á íslensku.”

Fyrst eyðileggur ríkið rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi með því að stórauka framlög til Ríkisútvarpsins. Síðan stingur ríkið dúsu upp í einkareknu fjölmiðlana í nafni þess að vernda frelsi þeirra og gera þeim kleift að veita stjórnvöldum aðhald. Síðan kemur ríkið og segir fjölmiðlunum hvert dagskrárefnið eigi að vera.

Bjóst einhver við að framsóknarmenn myndu ekki misnota aðstöðu sína í skjóli fjölmiðlastyrkjanna?“

Hver eru eiginlega rökin?

„En víkjum aftur að ríkisstyrkjum til fjölmiðla. Auka á framlögin til Ríkisútvarpsins um 7,2% eða 418 milljónir króna. Það er auðvitað galið þegar ríkissjóður verður rekinn með 46 milljarða tapi.

Enn vitlausara er að auka framlögin til einkarekinna fjölmiðla um 52,5%, úr 477 m.kr. í 727 milljónir króna á næsta ári.

Hver eru eiginlega rökin, Lilja Dögg Alfreðsdóttir?“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: