- Advertisement -

Ný hægri ríkisstjórn Bjarna 2021 / Sjallar fengið nóg af Vinstri grænum

„Komi til þess að úrslit kosninganna 2021 verði í líkingu við nýjustu könnun Gallups, þá væru mestar líkur á því að Bjarni Benediktsson velji að mynda stjórn frá hægri og inn á miðjuna frekar en stjórn frá hægri og yfir til sósíalista á vinstri kantinum. Flokksmenn Sjálfstæðisflokksins hafa fengið nóg af þjónkun við Vinstri græna!

Svona gæti mögulegur ráðherralisti nýrrar ríkisstjórnar t.d. litið út:

Frá Sjálfstæðisflokki: Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson fjármálaráðherra, Þórdís Kolbrún Gylfadóttir umhverfisráðherra, Jón Gunnarsson samgönguráðherra og Unnur Brá Konráðsdóttir forseti Alþingis.

Þá er gert ráð fyrir að hún verði kjörin að nýju þingmaður í Suðurlandskjördæmi.

Þú gætir haft áhuga á þessum
Bjarni ásamt þeim hinum sem verða ríkisstjórn hans, samkvæmt Hringbraut, vini Viðreisnar. Þungavigtin er svo á aðalmyndinni.

Frá Samfylkingu: Logi Einarsson sjávarútvegs-og landbúnaðarráðherra, Helga Vala Helgadóttir dómsmálaráðherra, Ágúst Ólafur Ágústsson menntamálaráðherra og einhver af nýjum þingmönnum flokksins félagsmálaráðherra. Allnokkur endurnýjun verður væntanlega í þingflokknum.

Frá Viðreisn: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Daði Már Kristófersson ferðamála-og iðnaðarráðherra og Hanna Katrín Friðriksson heilbrigðisráðherra.

Hér væri óneitanlega um öflugan hóp að ræða sem hefði 34 þingmenn á bak við sig.“

Þetta segir í grein á hringbraut.is. Vert er að hafa í huga að bein, eða óbein hið minnsta, taug er milli Hringbrautar og Viðreisnar.

En hvað um Vinstri græn. Núverandi systurflokks Sjálfstæðisflokksins. Hringbraut er með skýringar á því:

„Vinstri græn hafa bara eitt svar: Hækka skatta á atvinnulífið, borgarastéttina og þá efnaðri. Þeir vilja endurreisa auðlegðarskatta, stórhækka erfðafjárskatt, koma með eignarskatt að nýju, hækka tekjuskatt á fólk sem er með eina milljón eða meira á mánuði og innleiða hátekjuskatt, allt að 60%, á hina hæst launuðu sem hafa tvær milljónir eða meira í mánaðartekjur. Þeir munu einnig vilja hækka virðisaukaskatt. Vinstri grænir munu einnig flytja tillögur um margháttaðar hækkanir skatta og gjalda á atvinnulífið.

Indriði Þorláksson er þegar farinn að birta hótanir Vinstri grænna í Stundinni. Hann var aðalhöfundur skattpíningarstefnu Steingríms J. Sigfússonar í vinstri stjórninni illræmdu sem sat 2009 til 2013.

Sjálfstæðisflokkurinn verður að berjast harkalega gegn áformum VG í núverandi ríkisstjórn ef hann ætlar ekki að gjalda afhroð í kosningunum 2021.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: