- Advertisement -

Ónýtt útboð vegna Borgarlínu / framkvæmdir tefjast / kostnaður eykst

Ætli útboð gerð brúar yfir Fossvog sé ekki fyrsta alvöru útboðið vegna lagningar Borgarlínu. Útboðið er ónýtt. Og verður að endurtakast. Framkvæmdum seinkar og kostnaður eykst. Dæmigert.

„Ljóst er að taf­ir verða á fram­kvæmd­um við nýja brú sem til stend­ur að byggja yfir Foss­vog. Í ný­leg­um úr­sk­urði kær­u­nefnd­ar útboðsmá­la er felld úr gildi ákvörðun Vega­gerðar­inn­ar, Reykja­vík­ur­borg­ar og Kópa­vogs­bæj­ar frá 24. janú­ar sl. um val á þátt­tak­end­um í for­vali fyr­ir sam­keppni um hönn­un brú­ar­inn­ar. Áður hafði nefnd­in með úr­sk­urði í mars sl. stöðvað for­valið um stundarsakir,“ segir í Moggafrétt.

Frétt Moggans endar svona:

„Þá seg­ir kær­u­nefnd­in að með hliðsjón af þessu og at­vik­um máls­ins að öðru leyti verði að miða við að kær­end­ur hafi átt raun­hæfa mögu­leika á að verða fyr­ir val­inu hefðu val­for­send­ur verið sett­ar fram með lög­mæt­um hætti og að mögu­leik­ar þeirra hafi skerst við brotið.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Það er því álit kær­u­nefnd­ar útboðsmá­la að varn­araðilar séu bóta­skyld­ir gagn­vart kær­end­um vegna kostnaðar við að und­ir­búa um­sókn sína og taka þátt í hinu kærða for­vali. Þá var Vega­gerðinni, Reykja­vík­ur­borg og Kópa­vogs­bæ gert að greiða kær­end­um óskipt 900.000 krón­ur í máls­kostnað.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: