- Advertisement -

Ráðherrann drakk og bílstjórinn beið

Gunnar Smári skrifar:

„Mér finnst ekki pláss hér fyrir svona snobb, að láta þessa blessuðu ráðherra hafa bíl og bílstjóra til umráða.“

Eitt sem mig langar að vita er að ef starfsmaður fær dýran bíl til umráða og svo bílstjóra í ofan á lag, þarf hann ekki að borga skatt af þeim hlunnindum?

Einu sinni vann ég á veitingastað og þangað kom eitt kvöldið ráðherra með sínum nánustu starfsmönnum. Þeir borðuð og settust svo að drykkju sem stóð fram eftir kvöldi og langt fram á nóttina. Ég átti að loka kl. 11:30 en leyfði mönnunum að sitja og drekka áfram, seldi þeim reiðinnar býsn af áfengi. Allan tímann sat bílstjórinn út í ráðherrabílnum fyrir utan veitingastaðinn og beið síns herra, andlitið á honum lýstist upp af ljósunum í mælaborðinu og ég sá að hann hafði ekki tekið með sér bók, hann starði bara út í tómið og hefur hugsað sitt. Einu sinni sá ég hann fara úr bílnum til að rétta úr sér, enda þraut að sitja í sex, sjö tíma og bíða fyrir utan veitingastað meðan ráðherrann situr að sumbli inn í hlýjunni.

Við erum fámenn þjóð, nánast bara lítið þorp á hjara veraldar. Mér finnst ekki pláss hér fyrir svona snobb, að láta þessa blessuðu ráðherra hafa bíl og bílstjóra til umráða. Landið er of lítið fyrir svona stórmennsku. Þetta fer ekki vel með neinn, ekki bílstjórana og ekki ráðherrana. Við eigum að hætta þessu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: