- Advertisement -

Forsetinn ræddi sjálfstætt dómsmálaráðuneyti við Rússa

Stjórnsýsla „Þá var einnig rætt um fjölda dómstiga, mikilvægi sjálfstæðs dómsmálaráðuneytis og hlutverk stjórnarskrár í þróun lýðræðis, mannréttinda og réttarfars í ólíkum löndum,“ þetta kemur fram á vef forsetaembættisins, forseti.is.

En forseti Íslands sat fund með sendinefnd frá Rússlandi, sem skipuð er fulltrúum Lögfræðingafélags Rússlands og dómurum, sem og fulltrúum embætta saksóknara og annarra réttarfarsstofnana og laganefnda rússneska þingsins.

Á fundinum var rætt um þróun réttarríkisins á Vesturlöndum, þróun þrígreiningar ríkisvalds á Íslandi á 20. öld sem og skipan mannréttinda og grundvallarreglna um sjálfstæði dómstóla og lagaleg réttindi almennings. „Þá var einnig rætt um fjölda dómstiga, mikilvægi sjálfstæðs dómsmálaráðuneytis og hlutverk stjórnarskrár í þróun lýðræðis, mannréttinda og réttarfars í ólíkum löndum.“

Rússneska sendinefndin heimsækir einnig innanríkisráðuneytið, Embætti ríkissaksóknara, Héraðsdóm Reykjavíkur og Alþingi og á fund með fulltrúum Lögfræðingafélags Íslands.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: