- Advertisement -

Ríkisstjórnin setur lúkurnar í galtóma vasa þeirra allra verst settu

Sigurjón Magnús Egilsson:

Að þessu að dæma heyra ráðherrarnir hvorki né sjá. Stjórna frekar með tilskipunum. Þannig er það nú. Stefnan er sett á að breytingar á stöðu þeirra allra verst settu sem jafnast svo á við hækkunum á veiðigjöldunum.

Fjárlagafrumvarp hvers árs sýnir betur en nokkuð annað hvers konar ríkissstjórn er við völd hverju sinni. Núverandi ríkisstjórn er hörð og hún er vond. Fjármálaráðherra hefur afráðið að skerða verulega stöðu þess fólks sem er verst sett. Hafi hann og ríkisstjórnin öll skömm fyrir.

Hverskonar hugarfar er það herða svo að atvinnulausu fólki að á næsta ári jafnist það á við hálf veiðigjöldin umdeildu og eins á þar næsta ári og síðan að fullu.

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Hvað segir þetta um þau sem vilja hafa þetta svona?“  

Íslandsmeistararnir í málþófi, í þágu útgerðarinnar, segja ekkert við aðförin að fátækasta fólkinu í landinu. Þeirra er einnig skömmin. Annað er að samráð við verkalýðsforystuna var ekkert. Alveg dæmigert. Ríkisútvarpið átti tal við Finnbjörn Hermannsson, hinn ágæta forseta Alþýðusambandsins. Þar sagði hann meðal annars:

„Við fengum einn fund með félagsmálaráðherra þar sem hún tilkynnti okkur þetta, það var ekki samráð. Við erum bara að leggja til við ríkisstjórnina að hún dragi þetta til baka og fari til baka í þetta eðlilega horf, að hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins um svona stórt mál eins og atvinnuleysistryggingasjóður er gagnvart vinnumarkaðinum.“

Að þessu að dæma heyra ráðherrarnir hvorki né sjá. Stjórna frekar með tilskipunum. Þannig er það nú. Stefnan er sett á að breytingar á stöðu þeirra allra verst settu sem jafnast svo á við hækkunum á veiðigjöldunum.

„Samkvæmt áformum félags- og húsnæðismálaráðherra, sem kynnt eru í samráðsgátt, verður bótatímabil atvinnulausra stytt úr 30 mánuðum í 18. Auk þess stendur til að herða lágmarksskilyrði til þess að fá greiddar bætur.

Hvað segir þetta um þau sem vilja hafa þetta svona?“  


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: