- Advertisement -

Ríkisstjórnin tók ostamál af þingnefnd

„Mér skilst að frumvarpið sé fast inni í einhverjum af Framsóknarflokkunum í ríkisstjórninni.“ Ríkisstjórnin sögð hafa einbeittan brotavilja.

Þorgerður Katrín og Logi Már.

„Við í atvinnuveganefnd vorum tilbúin með málið. Við vorum búin að fara yfir það með hagsmunaaðilum og ráðuneytinu, allt tilbúið, en síðan komu fyrirmælin: Ráðherra ætlaði að flytja frumvarpið sjálfur. Fínt. Gott. En það bólar ekkert á frumvarpinu,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir á þingi.

Þorgerður Katrín sagði að ríkisstjórnin hefði tekið fram fyrir hendurnar á atvinnuveganefnd, þar sem Lilja Rafneyj Magnúsdóttur gegnir formennsku. „Af hálfu ríkisstjórnarinnar hefur ekkert gerst í málinu. Hvar er málið fast? Enn og aftur sjáum við að neytendasjónarmið eru sjónarmið sem eru ávallt hornreka hjá þessari ríkisstjórn. Nú er mál að linni. Ég vil fá málið inn á borð þingsins. Við höfum einn dag til að afgreiða það í þágu neytenda.“

Logi Einarsson tók undir með Þorgerði Katrínu, sem og margir aðrir þingmenn. „Á fagmáli myndi þetta heita einbeittur brotavilji. Hér er um brýnt neytendamál að ræða og það er farið að skaða orðspor okkar hvernig við á þvermóðskufullan hátt þvælumst fyrir þeim samningum sem við þó erum búin að gera. Fólk má gjarnan kalla þessa þrjá flokka framsóknarflokka eða hvað sem er, en þeir eru a.m.k. saman í ríkisstjórn um sérhagsmuni en ekki hagsmuni neytenda,“ sagði Logi.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í upphafi sinnar ræðu rifjaði Þorgerður Katrín þetta upp: „Í síðustu viku hvatti ég hæstv. forseta til að gæta þess að skapa rými fyrir frumvarp frá ríkisstjórninni um það að laga klúður sem varð á síðasta ári varðandi tollfrjálsa kvóta sérosta. Enn bólar ekkert á frumvarpi frá ríkisstjórninni. Mér skilst að frumvarpið sé fast inni í einhverjum af Framsóknarflokkunum í ríkisstjórninni. Það skiptir núna máli að við höfum hugfast að það er verið að hlunnfara neytendur. Þetta er risahagsmunamál, neytendamál. Í stað þess að ríkisstjórnin auglýsti 37 tonn af sérostum 1. maí átti hún að auglýsa 140 tonn. Það er verið að hlunnfara neytendur.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: