- Advertisement -

Segja Áslaugu Örnu vera heilalausa skrautfjöður Bjarna Benediktssonar

Hilda Jana Gísladóttir. Henni er brugðið: Bæði á samfélagsmiðlum og í samtölum er kyn ráðherra og aldur margítrekað dreginn inn í umræðuna.
Ljósmynd: Vikudagur.

„Í gær gagnrýndi ég harðlega ákvörðun dómsmálaráðherra um að loka fangelsinu á Akureyri. Í dag er ég í hálfgerðu áfalli yfir viðbrögðum margra í kjölfarið,“ skrifar Hilda Jana Gísladóttir, bæjarfulltrúi á Akureyri.

„Bæði á samfélagsmiðlum og í samtölum er kyn ráðherra og aldur margítrekað dreginn inn í umræðuna. Því er jafnvel haldið blákalt fram að hún sé einhvers konar leppur formanns flokksins eða heilalaus skrautfjöður hans,“ skrifar Hilda Jana.

„Dómsmálaráðherra er þrítug kona sem hefur lokið MA prófi í lögfræði, hefur starfað í lögreglunni, á lögmannsstofu og sem blaðamaður, hún hefur verið formaður allsherjar- og menntamálanefndar, formaður utanríkismálanefndar og verið þingmaður í fjögur ár. Ef vinum mínum og kunningjum skortir önnur orð til að kalla hana en „ungpíu“ eða eitthvað í þeim dúr, þá get ég bent á að það gæti verið ágætt að kalla hana það sem hún er: dómsmálaráðherra. Hitt er svo allt annað mál að við getum gagnrýnt ákvarðanir þessa sama ráðherra harðlega, en mikið vildi ég óska að við gætum gert það málefnalega en ekki með þessum löngu úrelta hætti.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: