- Advertisement -

Staðið vörð um menningararfinn

Landsnefnd Bláa skjaldarins á Íslandi var stofnuð formlega þann 24. október á degi Sameinuðu þjóðanna á Þjóðminjasafni Íslands. Markmið Bláa skjaldarins – International Committee of the Blue Shield- er að vinna að verndun menningararfs heimsins með því að samhæfa viðbragðsáætlanir þar sem hættuástand verður.

Íslandsdeildir ICOM, ICOMOS og fulltrúar IFLA, ICA á Íslandi hafa ákveðið að taka höndum saman og stofna Landsnefnd Bláa skjaldarins á Íslandi. Þarna kom því saman fjölmennur hópur fólks sem starfar að varðveislu menningarminja ásamt fulltrúum Almannavarna, Landsbjargar, ráðuneyta og Rauða krossins, en Blái skjöldurinn hefur verið nefndur rauði kross menningarminja.

Með því vilja þessi samtök hvetja til samstarfs stofnana sem bera ábyrgð á menningararfi, svo og ríkisstjórnar, sveitarfélaga og Almannavarna um forvarnir og viðbrögð við vá, svo að tryggja megi öryggi mennningarminja ef hætta steðjar að.

Nafnið Blái skjöldurinn vísar til bláa litarins í merki því sem menningarminjar, sem njóta verndar samkvæmt Hague sáttmálanum, eru auðkenndar með.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Blái skjöldurinn var stofnaður árið 1996 til að vinna að verndun menningararfs sem er í hættu vegna náttúruhamfara og stríðsátaka. Grundvöllur í starfi alþjóðanefndar Bláa Skjaldarins er Hague sáttmálinn frá 1954. Alþjóðanefnd Bláa skjaldarins hefur aðsetur í París en landsnefndir starfa víða um heim.

Blái skjöldurinn, sem nefndur hefur verið Rauði kross menningarminja, er UNESCO og öðrum alþjóðlegum samtökum til ráðgjafar og innan vébanda hans eru sérfræðingar með fjölbreytta þekkingu á sviði varðveislu menningararfs.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: