- Advertisement -

Standa stjórnvöld við sitt? Nei.

Björn Leví Gunnarsson:
„Miðað við mína reynslu þá hring­ir þetta öll­um aðvör­un­ar­bjöll­um.“

„Samt er það laga­leg skylda stjórn­valda að leggja fram kostnaðaráætl­un og ábata­grein­ingu varðandi alla notk­un á op­in­beru fé. Segj­ast stjórn­völd ætla að gera það? Já. Gera þau það? Nei.“

Það er Björn Leví Gunnarsson sem bæði spyr og svarar. Greinilega fullur efasemda um að orð fylgi athöfnum.

Þetta er úr Moggagrein í dag. Hann fjallar þar um verkefnalista ríkisstjórnarinnar. Sem hann gefur ekki mikið fyrir. Verkefnin eða ríkisstjórnina? Bæði.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Björn Leví spyr: „Hver fær pen­ing og af hverju? Hvað er arðbær fjár­fest­ing og þýðir sú staðhæf­ing eitt­hvað miðað við að við fáum aldrei að vita hver væntur arður er af fjár­fest­ing­um? Miðað við mína reynslu þá hring­ir þetta öll­um aðvör­un­ar­bjöll­um vegna þess að þó að þetta líti vel út á blaði þá er „arðbær fjár­fest­ing“ inn­an­tóm orð. Síðasta kostnaðar- og ábata­greinda verk­efnið sem ég sá á veg­um stjórn­valda var borg­ar­lín­an árið 2018.“

Síðan kemur upprifjun sem sér til þess að við fáum kalt vatn milli skinns og hörunds:

„Það er verið að taka 95 millj­arða lán í ýmis verk­efni sem giskað er á að muni skila ábata og redda okk­ur úr lægðinni. Það er full­yrt að um arðbær­ar fjár­fest­ing­ar verði að ræða en á sama tíma er aug­ljós og viður­kennd áhætta upp á 35 millj­arða króna. Kald­hæðnis­leg upp­hæð í sögu­legu sam­hengi en ein­hverj­ir muna kannski að tap skatt­greiðenda vegna neyðarláns til Kaupþings var ein­mitt 35 millj­arðar. Það ætti að gefa okk­ur hug­mynd um hver ábyrgðarlega stærðargráðan er.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: