- Advertisement -

Það er enginn friður fólginn í því að geta ekki borðað út mánuðinn

Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar:

Það er enginn friður fólginn í því að vera láglaunamanneskja.

Það er enginn friður fólginn í því að geta ekki borðað út mánuðinn.

Friðinn má ekki finna í innheimtukröfum sem minna reglulega á sig.

Það er enginn friður í því að telja klinkið sem er eftir og deila því niður á mánaðardagana.

Það er enginn friður fólginn í því að þurfa sífellt að neita sér um hluti.

Það er andstæðan við friðarástand að vera svangur og reyna að fylla magann með tómum hitaeiningum vatns.

Það er enginn friður fólginn í því að þurfa sífellt að neita sér um hluti og að geta ekki leyft börnunum þínum að njóta sín.

Ófriðurinn í lífi verka- og láglaunafólks er í boði stjórnvalda, auðvaldsins og þeirra sem tala máli þeirra og vilja halda fátæku fólki niðri að eilífu. –

Skrifað i kjölfar þess að hafa lesið viðtal við framkvæmdastjóra samtaka atvinnulífsins þar sem hann setur fram skilgreiningar sínar á friði og ófriði.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: