- Advertisement -

Þar sem öllum tillögum okkar er slátrað

Kolbrún Baldursdóttir: „Dagurinn eftir borgarstjórnarfund er venjulega hunderfiður.“

„Dagurinn eftir borgarstjórnarfund er venjulega hunderfiður. Fundurinn í gær stóð í 10 tíma með einu stuttu matarhléi. Eftir svona fund þar sem allar tillögur okkar í minnihlutanum er slátrað með stæl er maður einfaldlega í tilfinningalegu uppnámi, allt frá því að upplifa reiði yfir í vonleysi,“ segir Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins.

„Oftast nær sef ég lítið eftir þessa fundi. Hausinn á manni heldur áfram að snúast um málin og hvernig þeim var með engum handbærum rökum sópað niður af borðinu af eins manns meirihlutanum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: