- Advertisement -

Vanda gefur grænt ljós á Aron Einar í landsliðið: „Engar reglur sem banna þjálfara að velja ákveðna leikmenn“

Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, segir engar reglur banna landsliðsþjálfa að velja ákveðna leikmenn í liðið. Því sé Arnari Viðarssyni, þjálfara karlalandsliðsins í fótbolta, frjálst að velja Aron Einar Gunnarsson, fyrrum fyrirliða liðsins, í næsta landsliðsverkefni.

„Eins og staðan er núna þá eru engar reglur sem banna landsliðsþjálfara að velja ákveðna leikmenn,“ segir Vanda, aðspurð hvort Arnar gæti valið Aron í samtali við Fréttablaðið.

Aron og Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður FH, voru síðasta haust kærðir fyrir nauðgun sem átti að hafa átt sér stað á hótelherbergi í Kaupmannahöfn árið 2010. Þá voru leikmennirnir í verkefni á vegum landsliðsins og hið meinta fórnarlamb er íslensk kona.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakaði málið og skilaði því inn á borð héraðssaksóknara sem á endanum felldi málið niður, þar sem það þótti ekki líklegt til sakfellingar.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Vanda hefur ekkert rætt við Aron Einar frá því að málið kom upp en leikmaðurinn hefur ekki verið valinn í íslenska landsliðshópinn undanfarið. Unnið er að reglum innan ÍSÍ hvernig taka skal á svona málum þegar þau koma upp, meðal annars sem snúi að vali á leikmönnum í landsliðið.

„Vonandi klárast þessi vinna sem allra fyrst. Þar sem þetta hefur dregist hefur KSÍ farið af stað í að útbúa bráðabirgðareglur sem eiga að verða tilbúnar á næstu vikum,“ segir Vanda.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: