- Advertisement -

Vilja einkavæða borgarfyrirtækin

„Við höfum lagt til sölu eigna eins og Gagnaveitunnar, Malbikunarstöðvarinnar Höfða og eignarhlutar borgarinnar í Landsneti til ríkisins en með því gæti borgin mætt bæði fólki og fyrirtækjum og lækkað skuldir um leið,“ segir í bókun Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn.

Þeir segja stöðu borgarsjóðs bága:

„Ekki tókst að greiða niður skuldir í mesta tekjugóðæri sögunnar og skuldasöfnun A-hluta og samstæðu halda áfram að vaxa á fullu. Uppsveiflan er búin. Skuldir og skuldbindingar samstæðu Reykjavíkurborgar jukust um 21 milljarð á síðasta ári, í góðæri, eða um u.þ.b. tvo milljarða á mánuði,“ segir í bókuninni.

-sme

Þú gætir haft áhuga á þessum

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: