Alþingi: Þórunn Sveinbjörnsdóttir, forseti Alþingis, flutti rétt áðan eftirfarandi minningarorð um Halldór Blöndal.
Halldór Blöndal, fyrrverandi forseti Alþingis og ráðherra, lést hér í Reykjavík aðfaranótt 16. desember, 87 ára að aldri.
Halldór Blöndal var fæddur í Reykjavík 24. ágúst 1938, sonur hjónanna Lárusar H. Blöndals magisters, síðast bókavarðar Alþingis, og Kristjönu Benediktsdóttur húsmóður. Halldór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri árið 1959 og lagði síðan stund á lögfræði og sagnfræði við Háskóla Íslands jí nokkur misseri. Með námi var hann flensari í Hvalstöðinni í Hvalfirði, kennari, blaðamaður og starfsmaður á endurskoðunarstofu. Sem blaðamaður var Halldór um tíma þingfréttaritari á Morgunblaðinu og þekkti störf Alþingis frá þeim sjónarhóli áður en hann var kjörinn á þing.
Halldór gekk ungur til liðs við Sjálfstæðisflokkinn en ættmenn hans margir voru þar í forystu og þingmenn flokksins. Við alþingiskosningarnar í júní 1971 var Halldór á framboðslista flokksins í Norðurlandskjördæmi eystra, sem var hans pólitíski heimavöllur og höfuðvígi, og varð þá varaþingmaður. Hann sat eftir þetta á öllum þingum, nema einu, í lengri eða skemmri tíma þar til hann hlaut fast sæti í desemberkosningunum 1979. Hann kom ríkur að reynslu til þingstarfa og sat samfellt í 28 ár, eða fram til vorsins 2007. Hann hafði þá setið á 40 löggjafarþingum alls.Halldór Blöndal varð samgöngu- og landbúnaðarráðherra í fyrstu ríkisstjórn Davíðs Oddssonar, sem tók til starfa í lok apríl 1991, og samgönguráðherra var hann frá 1995 til 1999. Að loknum kosningum vorið 1999 var Halldór kjörinn forseti Alþingis og því embætti gegndi hann til ársins 2005, í sex ár.
Stjórnmál voru höfuðviðfangsefni Halldórs Blöndals alla ævi og ástríða hans. Hann minntist þess í viðtölum að hafa setið þingflokksfundi Sjálfstæðismanna frá 1961 þegar Ólafur Thors var flokksformaður og hafði kynni af öllum formönnum flokksins nema hinum fyrsta, Jóni Þorlákssyni. Hinu víðlenda kjördæmi sínu á Norðurlandi vann Halldór af heilum hug, málefnum þess og hagsmunum. Samgöngumál voru fyrirferðarmest í starfi hans en Halldór lét einnig menntamál til sín taka og vann m.a. einarðlega að stofnun Háskólans á Akureyri árið 1987. Í tíð Halldórs sem samgönguráðherra varð bylting í fjarskiptatækni með farsímum og netvæðingu sem breytti miklu um viðfangsefni ráðuneytis hans.
Halldór Blöndal bar í brjósti mikinn metnað fyrir Alþingi og á forsetatíð hans voru gerðar margháttaðar endurbætur á Alþingishúsinu og innanstokksmunir endurnýjaðir. Nefndir þingsins fengu nýtt hús handan Austurvallar fyrir starfsemi sína og Skálinn var tekinn í notkun 2002 í því skyni að bæta starfsaðstæður þingmanna. Á forsetastóli var Halldór röggsamur og fastheldinn á gamlar venjur en sanngjarn í fundarstjórn. Halldór Blöndal var stór í sniðum, skapríkur maður og baráttuglaður, en líka sáttfús og trygglyndur þeim sem með honum unnu.
Halldór var landskunnur hagyrðingur og unni ljóðlist og bókmenntum. Að þingsetu lokinni varð hann forseti Hins íslenzka fornritafélags og jafnframt stýrði hann lengi vísnaþáttum í Morgunblaðinu.
Ég bið þingheim að minnast Halldórs Blöndals, fyrrverandi forseta Alþingis, með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]
ö