Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði:
„Stór verkefni eru auðveldari í góðu samstarfi.
Fjárlög í gær, þingsetning í dag og stefnuræða á morgun.
Við hættum loksins að reka ríkið á yfirdrætti. Ekki að gamni okkar – heldur til að ríkið hætti að kynda undir verðbólgu og háum vöxtum.
Eins og Inga Sæland bendir á þá er ríkið að greiða hátt í hálfan milljarð í vexti á hverjum einasta degi. Eftir hallarekstur síðustu ára.
Hvernig lokum við gatinu í fjármálum ríkisins? Með 44 milljarða aðhaldi í útgjöldum sem er útlistað nákvæmlega í fjárlögum – þannig að ríkisútgjöld fara í fyrsta sinn undir 30% af landsframleiðslu á þessum áratug.
Og með 34 milljörðum á tekjuhlið þar sem mestu munar um hærri bankaskatt, afnám skattaafsláttar fyrir baðlón og náttúru- og innviðagjald við nokkrar náttúruperlur í eigu þjóðarinnar.
Kílómetragjaldið hækkar helmingi minna en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar. Þá var stefnt að 7,5 milljarða hækkun umfram verðbólgu á árinu 2027. En það var af því að tekjur af ökutækjum hrundu með fjölgun rafbíla og þess vegna þurftum við kílómetragjald í staðinn fyrir ýmsa skatta á bensín og dísel.
Í sumar hefur ríkisstjórnin átt í þríhliða samtali við Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins. Þetta samtal er enn í gangi en þar eru meðal annars til umræðu aðgerðir til að halda aftur af hækkun gjalda, draga úr vægi verðtryggingar, auka öryggi á leigumarkaði, einfalda regluverk og taka fastar á brotum á réttindum launafólks.
Ég hlakka til að segja betur frá verkum næsta þingvetrar. Vona að þið fylgist með.“
Skrifin birti Kristrún á Facebook.