- Advertisement -

Ísland aftarlega á merinni

Stjórnmál:

„Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, samþykkti, ásamt norrænum atvinnuvegaráðherrum og öðrum samstarfsráðherrum, yfirlýsingu um að efla samkeppnishæfni Norðurlanda á heimsvísu

Þetta segir meðal annars í nýrri yfirlýsingu um að efla samkeppnishæfni Norðurlanda á heimsvísu. Sjá nánar hér.

Um stöðu Íslands segir:

Þú gætir haft áhuga á þessum

„Ísland deilir mörgum styrkleikum nágranna sinna en stendur jafnframt veikar að vígi á nokkrum mælikvörðum. Þannig kemur fram í greiningunni að aðeins um 160 einkaleyfisumsóknir hafi verið á hverja milljón íbúa á Íslandi árið 2024, en meðaltal Norðurlandanna hafi verið 572 umsóknir. Reglubyrði á Íslandi er meiri en á öðrum Norðurlöndum auk þess sem smæð hagkerfisins og tiltölulega háar opinberar skuldir árið 2024 auka næmni fyrir ytri áföllum. Á móti kemur forskot í orkumálum, ekki síst gnægð endurnýjanlegrar raforku, sem kallar á hraðari uppbyggingu framleiðslu- og flutningsgetu.”


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: