- Advertisement -

„Það kalla ég mannvonsku“

Íþróttir:

Brynjar Karl, þjálfari Aþenu, skrifaði:

„Saga Darínu, Breiðhyltings sem byrjaði að æfa körfubolta hjá Aþenu 13 ára gömul, er mögnuð. Hún er fædd í Úkraínu og tilheyrir fyrstu kynslóð leikmanna sem byggðu upp Aþenu. Svona sögur gætu orðið til aftur og aftur, á hverju einasta ári, ef borgin styður við starfið.

Til hamingju, elsku Darína. Þú ert mögnuð fyrirmynd fyrir ungt fólk, sérstaklega stelpur í erfiðri stöðu í 111 Reykjavík.

Ef hann og hans
ömurlega hyski…

Pælið í því: Ef borgaryfirvöld hefðu einhvern tímann náð sínu fram og hent Aþenu út, hefði Darína þá fengið þessi sömu tækifæri?

Og nú er kominn nýr meirihluti, með Bjarna Guðjónsson í fararbroddi í þessu máli. Ef hann og hans ömurlega hyski fá sínu framgengt munu stelpurnar í 111 Reykjavík missa af stuðningnum og tækifærunum sem Darína fékk til að þroska hæfileika sína og láta drauma sína rætast.

Það ömurlega er að Bjarni veit hversu gríðarlega mikla vinnu þarf til að jafna leikinn fyrir börn af erlendum uppruna í Breiðholti. Hann veit af vanhæfninni og spillingunni sem Aþena hefur þurft að berjast gegn í borgarpólitíkinni.

Fyrir kosningar þegar Aþena barðist við gamla meirihlutann lofaði Sjálfstæðisflokkurinn okkur rekstrarsamningi til að tryggja áframhald starfsins í þessu fjandsamlega umhverfi. Til að við gætum haldið áfram að berjast fyrir tækifærum krakkanna.

En núna vinnur Bjarni og meirihlutinn gegn starfinu sem skapar þeim þessi tækifæri. WTF

Það kalla ég mannvonsku. Ekkert annað.“


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: