Reykjavíkurborg:
Björn Leví Gunnarsson skrifaði:

„Afsakið, en þetta er hörmuleg hugmyndafræði. Þetta er ekkert öðruvísi en að selja vegakerfið, raforkudreifingu, vatnslagnir og fleira í þeim dúr. Verðmætin í þessum innviðum eru að þurfa ekki að borga undir gróðafíkn fákeppninnar. Þessi verðmæti sem er sagt að verði hægt að nota til þess að greiða niður skuldir munu enda í því að borgarbúar greiða meira fyrir aðgang að þessum innviðum – og með því greiða óbeint hærri skatta.
Fylgir þessu loforði skattalækkun í samræmi við lægri skuldir? Til þess að halda borginni frá því að stofna bara strax til meiri skulda í kjölfarið til þess að „nýta svigrúmið“ – og endurtaka þá brelluna með því að selja næstu innviði til þess að borga næstu skuldaaukningu?
Gætum við vinsamlegast gert kröfu um það hvað teljist til grunninnviða. Það má vera samkeppni þar, auðvitað. En á sama tíma ber hið opinbera þá skyldu til þess að hafa þá grunninnviði til staðar á öruggan og hagkvæman hátt fyrir íbúa hérna. Ég nenni ekki enn einni einkavæðingu á innviðum sem hið opinbera byggði upp.“