Frá leynifundinum í borgarstjórn:
Hér eru birtar þær bókanir sem gerðar voru á leynifundi borgarstjórnar sem haldinn var í birtingu í gær.
„Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Meirihluti borgarstjórnar leggur til að hlutfall stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar verði ekki hærra en 7,5% af heildarstöðugildum borgarinnar. Með fyrirliggjandi tillögu mun stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu fækka um tæplega 74, en frá upphafi kjörtímabils mun stöðugildum í miðlægri stjórnsýslu hafa fækkað um 130 og heildar hagræðing nema 2,3 milljörðum króna á ársgrundvelli. Lögð hefur verið áhersla á að standa vörð um störf í beinni þjónustu við íbúa borgarinnar. Þetta hafa verið erfiðar ákvarðanir sem ekki eru teknar af léttúð en í ljósi efnahagsumhverfis og fjárhagsstöðu borgarinnar reyndust þessar ákvarðanir nauðsynlegar til að treysta rekstur borgarsjóðs. Borgin hefur verið rekin með miklum halla undanfarin ár og við þeirri stöðu verður að bregðast af festu og ábyrgð. Aðgerðirnar í dag fela í sér þriðja og síðasta áfanga við fækkun stöðugilda í miðlægri stjórnsýslu en næstu verkefni hagræðingarhóps munu snúa að eignasafni borgarinnar, innkaupum og veikindahlutföllum.“
Hvað sögðu borgarfulltrúar Samfylkingarinnar:
Stöðugildum hefur
verið fækkað um 130.
„Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar heldur áfram að snúa öllu á hvolf í rekstri Reykjavíkurborgar. Farið er í fordæmalausar uppsagnir í þremur niðurskurðarlotum þar sem stöðugildum hefur verið fækkað um 130 án þess að metin séu áhrif á þjónustu. Viðmiðið um að miðlæg stöðugildi verði 7,5% af öllum stöðugildum borgarinnar byggir ekki á neinum faglegum forsendum og meirihlutinn hefur ekki sýnt hvaðan hlutfallið kemur. Auk þess hefur hvergi verið sýnt fram á að þörfin fyrir þessar hörðu aðgerðir sé fyrir hendi. Grunnrekstur borgarinnar skilaði 7,9 milljörðum króna í afgang á fyrri hluta þessa árs. Reykjavík er það sveitarfélag á höfuðborgarsvæðinu sem stendur hvað best undir fjárhagslegum skuldbindingum og skuldahlutfallið er það næstlægsta á svæðinu. Meirihlutinn teiknar upp svarta mynd af rekstrinum og notar hana sem afsökun til að keyra áfram sína hörðu hægri pólitík. Það er pólitík sem snýst um að skera niður í því sem við eigum hérna saman og gerir borgina að góðum stað til að búa í. Slík pólitík virðist hafa það sjálfstæða markmið að segja upp sem flestu fólki sem getur leitt til þess að sparað er til tjóns. Samfylkingin vill að Reykjavík sé sterkt velferðarsamfélag þar sem ábyrg fjármálastjórn ver þjónustuna og langtímahagsmuni borgarbúa.“
Þá eru það borgarfulltrúar Vinstrisins:
Fundi á ekki að loka
nema brýnar og
réttmætar ástæður séu til.
„Vinstrið gerir alvarlegar athugasemdir við það að loka fundi borgarstjórnar og hvernig staðið var að boðun hans. Það er fjölskipaðs stjórnvalds að taka ákvörðun um að loka fundi og getur meirihlutinn ekki einhliða ákveðið að sú ákvörðun sem liggur fyrir fundi sé með þeim hætti að honum þurfi að loka. Fjölskipað stjórnvald þarf að leggja mat á það áður en til lokaðs fundar kemur. Hins vegar var fundarboð sent mánudagsmorgun þar sem borgarfulltrúum var tilkynnt að mæta á lokaðan fund daginn eftir og að tillaga borgarstjóra um flatan niðurskurð í starfsemi Reykjavíkur lægi fyrir fundinum í trúnaðargátt. Vinstrið gerði athugasemdir við þetta og stendur við þær. Í lögum og greinargerð með lögum kemur skýrt fram að fundi á ekki að loka nema brýnar og réttmætar ástæður séu til. Flatur niðurskurður í rekstri borgarinnar telst ekki til þess enda eru það verkefni sveitarfélaga í sífellu að gera tillögur um rekstrartillhögun. Engin haldbær rök hafa verið færð af hálfu meirihlutaflokkanna um að loka fundinum. Það má því ætla að með allri þessari leyndarhyggju, andlýðræðislegu vinnubrögðum og valdníðslu hafi Sjálfstæðisflokkur, Viðreisn og Framsókn viljað láta reiða til höggs í felum. Það er ótrúlegur skræfuháttur.“
Og að endingu, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins:
Ógagnsæ og
ólýðræðisleg vinnubrögð.
„Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggst ekki í grunninn gegn aðhaldi í stjórnendalagi Reykjavíkurborgar en það verða að liggja fyrir málefnalegar forsendur og skýr rökstuðningur fyrir fækkun hvers stöðugildis. Meirihlutinn boðar hins vegar blindan niðurskurð með þessari tillögu og áhrif þess liggja ekki fyrir. Hvergi er tilgreint hvaða störf er verið að falla frá og því ekki hægt að leggja mat á verðmæti þeirra. Ekki er ljóst hvaða verkefni munu færast til í kerfinu, hvort ofaukið álag verði lagt á aðra borgarstarfsmenn og hvaða verkefni munu hverfa. Ekki er hægt að leggja mat á það hvort langtíma áhrif uppsagnanna muni skerða skilvirkni innan kerfisins eða ekki, eða hvort tillagan muni auka þörf á aðkeyptri þjónustu. Meirihlutinn firrir sig pólitískri ábyrgð með þessari framkvæmd. Jafnframt getur ekki talist ábyrgt að fara í fjöldauppsagnir miðað við efnahagsástandið og hækkandi atvinnuleysi. Miðað við ógagnsæ og ólýðræðisleg vinnubrögð er ekki hægt að greiða atkvæði með þessari tillögu. Borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands þakkar því starfsfólki sem breytingarnar snerta fyrir vel unnin störf.“