
Tólf umsóknir bárust um embætti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytis sem auglýst var laust til umsóknar 10. apríl síðastliðinn. Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna nefnd til að meta hæfni umsækjenda í samræmi við lög um Stjórnarráð Íslands.
Umsækjendur um embættið eru:
- Birna Arnardóttir, nemi
- Dís Sigurgeirsdóttir, sérfræðingur á Financial Mechanism Office hjá EFTA
- Gunnhildur Gunnarsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Íbúðalánasjóðs
- Haukur Guðmundsson, lögmaður
- Hildur Dungal, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu
- Kári Guðmundsson, nemi
- Kristín Haraldsdóttir, lektor við HR
- Óli Ásgeir Hermannsson, yfirlögfræðingur hjá Landhelgisgæslu Íslands
- Ólöf Finnsdóttir, framkvæmdastjóri dómstólaráðs
- Páll Þórhallsson, skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
- Veturliði Þór Stefánsson, sendiráðunautur í sendiráði Íslands í Kaupmannahöfn
- Þórunn Júníana Hafstein, skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu
Þú gætir haft áhuga á þessum
Í nefndinni til að meta hæfni sitja:
Ágústa Hlín Gústafsdóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum hjá Vexti ráðgjöf,
Guðrún Jenný Jónsdóttir, deildarstjóri hjá ríkisskattstjóra,
Haukur Örn Birgisson, hæstaréttarlögmaður hjá Íslensku lögfræðistofunni, sem jafnframt verður formaður.