- Advertisement -

Palli hættir líka í bæjarstjórn

Umræðan: Páll Magnússon, forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að vera ekki í framboði í komandi kosningum:

Góðir Eyjamenn og annað fólk!

Ég hef ákveðið að gefa ekki kost á mér til áframhaldandi setu í bæjarstjórn Vestmannaeyja þegar kjörtímabilinu lýkur nú í vor. Þetta geri ég sáttur, glaður og stoltur með þann árangur sem náðst hefur í rekstri og stjórn bæjarins þau fjögur ár sem ég hef setið í bæjarstjórn – og raunar öll átta árin sem bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey hefur verið í forystu hér í bænum. Ég er þakklátur fyrir þann stuðning sem bæjarbúar hafa sýnt H-listanum – og félögum mínum í bæjarstjórn fyrir að treysta mér til að vera forseti bæjarstjórnar á meðan ég hef setið þar.

Þetta er ekki kveðjustund – það eru tæpir þrír mánuðir eftir af kjörtímabilinu – og ég mun gera nánari grein fyrir því sem áunnist hefur þegar nær dregur.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Þangað til: Takk fyrir mig – og áfram Vestmannaeyjar!


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: