Stórnmál: Sigurjón Þórðarson, alþingismaður og formaður fjárlaganefndar, skrifaði:
Það sem af er kjörtímabilinu þá hefur málflutningur Framsóknarflokksins gengið út á að auka ríkisútgjöld til flestra málaflokka á sama tíma og flokkurinn hefur lagst gegn allri tekjuöflun ríkisins m.a. veiðigjöldum, og hefur heldur ekki verið sérstaklega áfram um að auka umsvif t.d. með auknum fiskveiðum.
Sparnaðartillögur Mið- og Sjálfstæðisflokks hafa helst gengið út á að rýra kjör eldri borgara og öryrkja að ógleymdri frjálshyggjuflippi formanns Sjálfstæðisflokksins um að selja Landsvirkjun og Keflavíkurflugvöll – nánast eina hliðið landsins út í heim.
Þessi andstaða Sjálfstæðisflokksins við að koma í veg fyrir kjör lífeyrisþega rýrni ekki samanborið við kjör annarra er sérstök þar sem ekki stóð á flokknum að samþykkja kjarasamninga lækna á LSH og SAK í aðdraganda síðustu kosninga. Samninga sem kosta miklu mun meira fyrir ríkissjóð árlega en að tryggja tekjur lífeyrisþega eða ríflega fimm milljarða króna samkvæmt nýlegri áætlun.