- Advertisement -

Páskaeggjahringekjan

Grein: Hún er sérstök umræðan um páskaeggin. Hvenær byrjaði þetta allt saman? Núna eða hefur þetta tíðkast í langan tíma? Ég var lengi á vinnumarkaði og aldrei þekktist þá að fólk fengi gefin páskaegg. Aldrei.

Er þessi ósiður komin frá sælgætisverksmiðjunum? Að gefa fullorðnu fólki páskaegg er stórmerkilegt. Til er gott fólk sem safnar páskaeggjum til að gefa börnum sem búa við fátækt. Það viðhorf er göfugt.

Á sama tíma ber fullorðið fólk, sumt hvert, sig afar aumlega vegna þess að það fékk ekki páskaegg frá sínun vinnustað. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra orðar þetta vel fyrir okkur báða:

mbl.is: „Ég var starfsmaður Háskóla Íslands árum saman og fékk aldrei páskaegg. Ef ég hefði fengið páskaegg hefði ég hugsað að þessum peningum hefði nú verið betur varið í eitthvað annað,“ segir Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra en eins og fram hefur komið gefur ráðuneyti hans starfsmönnum ekki páskaegg. Í þessum efnum er Daði Már hvorki mikið fyrir að gefa né þiggja. „Ég hef það almennt fyrir reglu að hlutir sem ég fæ einn fara á kaffistofuna. Ef til vill er ég svolítið smásmugulegur með þetta, en mér líður best ef ég hef ekki þegið neitt,“ segir hann.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Svona eiga ráðherrar að vera – og blaðamenn. Þiggjum ekkert.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: