Stjórnmál: „Röksemdin fyrir því að þingmenn eru með um það bil fimmtíu prósent hærri laun en meðallaun í landinu er sú að þingmenn geti sinnt þessu sem aðalvinnu og þurfi í engum tilvikum að vera með aukavinnu. Það er ansi mikið virðingarleysi við kjósendur að líta á bæjarstjórastarfið í Reykjanesbæ eða þingmannsstarfið sem einhvers konar aukavinnu,“ segir Haukur Arnþórsson sem þá stöðu sem Vilhjálmur Árnason hefur komið sér í..
Eins og fram hefur komið er Vilhjálmur enn formlega þingmaður Suðurkjördæmis. Um helgina sagði hann í samtali við fréttastofu að hann þurfi tíma til að klára sín mál gagnvart þingflokknum áður en hann segi þingmennsku af sér. Hann kvaðst stefna á að gera slíkt um viku til tíu dögum þar á eftir.
Má skilja þetta þannir að Vilhjálmur telji sig ómissandi?
Vilhjálmur kallaði inn varamann í sinn stað á Alþingi um miðjan apríl. Ingveldur Anna Sigurðardóttir tók þá sæti á þingi en hún var þriðji maður á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum
Sjálfstæðismenn áberandi
Þetta sé alls ekki fyrsta dæmið. Davíð Oddsson var á sama tíma forsætisráðherra og borgarstjóri í tvo mánuði. Þá hafa tveir núverandi þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Rósa Guðbjartsdóttir og Bryndís Haraldsdóttir, verið bæði sveitarstjórnarfulltrúar og þingmenn á sama tíma. Rósa í Hafnarfirði og Bryndís í Mosfellsbæ.
„Þetta hefur loðað svolítið við Sjálfstæðisflokkinn. Ég á von á því að Guðrún Hafsteinsdóttir taki á þessu,“ segir Haukur.
