- Advertisement -

Á fullri ferð við að endurreisa fjármálakerfið sem hrundi

Alþingi Helgi Hjörvar, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, var ómyrkur í máli á Alþingi, þegar hann kvaddi sér hljóðs í dag.

Helgi Hjörvar„Ríkisstjórnin afneitar orsökum efnahagshrunsins á Íslandi árið 2008. Stjórnarflokkarnir eru á fullri ferð við að endurreisa sama fjármálakerfi og hrundi. Það er sami veiki gjaldmiðillinn, sama vonda verðtryggingin, sömu okurvextirnir og bráðum líka myntkörfulánin, sama fákeppni á bankamarkaði og lífeyrissjóðir lítt breyttir. Vinna er hafin við að einkavæða viðskiptabankaveldin á ný með drottnandi stöðu. Vaxandi spilling er á hlutabréfamarkaði og ýmis þenslumerki. Sama stýrivaxtapólitík heldur uppi óhóflegum kostnaði í atvinnulífinu og laðar erlenda spákaupmenn í vaxtamunaviðskiptum með fjármuni á nýjan leik inn í Seðlabankann,“ sagði Helgi.

Hann hélt áfram: „Íslensku þjóðarbúi vegnar vel, meðakl annars vegna ytri aðstæðna. En íslenskt þjóðarbú er viðkvæmt fyrir breyttum ytri aðstæðum. Það er vaxandi áhyggjuefni ef það er afstaða stjórnvalda að endurreisa eigi í óbreyttri mynd það fjármálakerfi sem féll.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: