Kosningar: Ari Edwald Miðflokki hefur skorað hlægilegasta sjálfsmark þessrrar kosningabaráttu. Furðar sig á að ekki séu bílastæði á göngugötu. Þetta er raunverulegt. Hann mun eiga erfitt með þetta asnaspark alla kosningabaráttuna. Þó það nú væri.
Fleiri hundruð bílastæði eru í næsta nágrenni. Neðanjarðar. Við hin leggjum þar þegjandi og hljóðlaust meðan frambjóðandinn ekur göngugötu með nagla undir öllum og bendir á hvar á göngugötunni mætti gera bílastæði.
Ari fær mínus í kladdann.