- Advertisement -

BB: „Helga Vala Helgadóttir er mjög óánægð með dómsmálaráðherrann okkar“

Í kjölfarið risu fundarmenn úr sætum og hylltu Jón Gunnarsson og Guðrúnu Hafsteinsdóttur.

Bjarni Benediktsson á flokksráðsfundi Sjálfstæðisflokksins:

„Ég sé það í fréttum síðustu daga að þingmaðurinn Helga Vala Helgadóttir er mjög óánægð með dómsmálaráðherrann okkar. Ég get vart hugsað mér meiri meðmæli með nokkrum ráðherra! Já, margir sem háværir og fyrirferðarmiklir eru í fjölmiðlum sjá enga þörf fyrir umbætur í útlendingamálum, né að markmið laganna séu virt. Markmið um að hafa stjórn á landamærunum og reglu á því hverjir ávinni sér rétt til búsetu og þjónustu á Íslandi. Þegar við höfum fylgt löngu og allt of kostnaðarsömu ferli til að meta umsóknir um vernd á Íslandi og niðurstaðan er neitun – nú, þá er það niðustaðan. Og hana ber að virða,“ sagði Bjarni. Í kjölfarið risu fundarmenn úr sætum og hylltu Jón Gunnarsson og Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem gegnt hafa embætti dómsmálaráðherra á kjörtímabilinu fyrir þeirra festu og dug í vandasömum málaflokkum.“


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: