„Allt þetta sér almenningur á Íslandi.“
Sigurður Kári KRistinsson.
Sigurður Kári Kristjánsson, lögmaður og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, skrifaði langa Moggagrein um hvers vegna við eigum ekki að sækja um aðild að Evrópusambandinu, bara alls, alls ekki.
Hér á eftir er niðurlag maraþonsgreinar SKK:
„Viðreisn, sem nú leggur allan sinn metnað og kraft í að koma Íslandi í ESB, hefur fram til þessa mistekist að sýna fram á hvers vegna hagsmunum Íslands er betur borgið innan ESB en utan þess.
Í þeirri umræðu dugar ekki að kokka upp ástæður sem byggja á öryggis- og varnarhagsmunum Íslands, allra síst á meðan við erum aðilar að Nató og erum með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin.
Þeim dugar heldur ekki að halda því fram að aðild Íslands að ESB ein og sér muni leiða til lægra vaxtastigs í landinu, enda alþekkt að það er einkum sífelld hækkun launa á Íslandi sem veldur verðþrýstingi, ekki gjaldmiðillinn.
Allt þetta sér almenningur á Íslandi.
Á meðan trúverðugar skýringar koma ekki frá Viðreisn og Samfylkingunni, er þetta aðildarbrölt þeirra nú andvana fætt.“
„Allt þetta sér almenningur á Íslandi.“ Hvaða almenningur? Valhellingar?