Eitt síðasta pólitíska verk Bjarna Benediktssonar, þá formanns Sjálfstæðisflokksins, var að hunsa ráðgjöf Hafró og heimila 3.800 tonna kvóta í djúpkarfa. Stofninn er í hættu.
„Stofninn samanstendur einungis af eldri kynþroska fiski og engin nýliðun hefur átt sér stað í hart nær tvo áratugi. Allar veiðar munu leiða til enn frekari minnkunar á stofninum og þeim má einfaldlega líkja við námugröft sem ekki getur talist til sjálfbærrar nýtingar,“ sagði Hafró.
Bjarna stóð á sama og heimilað, þrátt fyrir varnaðarorð Hafró, veiðar á 3.800 tonnum.
„Til að hindra frekari hnignun djúpkarfastofnsins við Ísland er nauðsynlegt að draga úr veiðum en ekki auka þær. Því má ná með því að fylgja ráðgjöf og reyna að draga sem mest úr meðafla djúpkarfa við aðrar veiðar, þá sérstaklega í gulllax- og grálúðuveiðum,“ sagði Hafró.
Kvótaúthlutun Bjarna er í gildi og verður svo út yfirstandandi kvótaár.