„Þetta er uppspretta óheiðarleikans.“
Björn Leví Gunnarsson.
Björn Leví Gunnarsson skrifar langa grein á Vísi. Á einum stað rifjar hann upp stjórnmálakenningu Davíðs Oddssonar:
„Fólk getur sökkt sér í alls konar mál og fengið ranga niðurstöðu. Pólitíkin og meira að segja vísindin eru troðfull af slíkum málum, þar sem fólk hefur annað hvort haft rangt fyrir sér eða viljandi snúið út úr. Ég bendi á opinbera viðurkenningu fyrrum forsætisráðherra:
„Ég gerði öll mál tortryggileg og fylgdi þeirri reglu veiðimannsins að maður má ekki einungis kasta flugu sem manni finnst falleg því að maður veit aldrei hvaða flugu laxinn tekur. Ég tók því upp öll mál, jafnvel þó að ég væri í hjarta mínu samþykkur þeim, og hjólaði í þau því að ég leit á stjórnarandstöðu sem stjórnarandstöðu.“
Ég veit að þessari aðferðafræði er enn beitt í pólitíkinni. Ég hef séð hana í verki oftar en einu sinni og þessi aðferðafræði er að mínu mati stærsta vandamál sem við stöndum frammi fyrir í mannlegu samfélagi. Þetta er uppspretta óheiðarleikans. Ég veit að fullt af fólki sem svarar „nei“ beitir samt þessari aðferðafræði – og því er það ekki satt að þeir aðilar séu endilega líklegir til þess að vilja öllum gott.“