„Þar nýtum við sameiginlega auðlind sem á að skattleggja í drep.“
„Auðlindirnar eru fleiri og situr Reykjavík á einni gullgæsinni, heita vatninu sem tryggir íbúunum heitt vatn á hagstæðu verði. Atriði sem valkyrjurnar ættu að skoða í leit sinni að auðlindagjöldum.“
Ómar Garðarsson margreyndur blaðamaður og ritstjóri í Vestmannaeyjum skrifar í Moggann. Hér á eftir fer seinni hluti greinarinnar.
„Dagur B. Eggertsson, af öllum mönnum, sendir útgerðarmönnum tóninn í blaðagrein fyrir nokkru. Þar buldi hátt í tómri tunnu og þykir mér meira mark takandi á Ragnari Árnasyni fyrrverandi prófessor þegar hann segir að aukin skattheimta á grunnatvinnuvegina, sama hvaða nafni hún er kölluð, dragi úr umsvifum þeirra og minnki þjóðartekjur og hagvöxt.
Segir Ragnar hlutverk ríkisstjórna að bæta lífskjör landsmanna og væri nær að draga úr ónauðsynlegum ríkisútgjöldum. Þar sé vissulega af nægum útgjaldaliðum að taka sem lítt eða ekki nýtast fyrir íslenska ríkisborgara.
…má m.a. þakka Binna í Vinnslustöðinni og Guðbjörgu í Ísfélaginu og þeirra fólki.
Ekki ætla ég að halda því fram að íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið sé gallalaust en við erum í fremstu röð í heiminum í sjávarútvegi. Vestmannaeyjar og fleiri bæir hafa risið úr öskustónni með öflugri sjávarútvegsfyrirtækjum. Þar nýtum við sameiginlega auðlind sem á að skattleggja í drep. En auðlindirnar eru fleiri og situr Reykjavík á einni gullgæsinni, heita vatninu sem tryggir íbúunum heitt vatn á hagstæðu verði. Atriði sem valkyrjurnar ættu að skoða í leit sinni að auðlindagjöldum.
Annars er allt gott að frétta frá Vestmannaeyjum, sem má m.a. þakka Binna í Vinnslustöðinni og Guðbjörgu í Ísfélaginu og þeirra fólki. Ekki má gleyma fjölskyldu Sigurjóns Óskarssonar, sem seldi útgerð sína innanbæjar og sneri sér að laxeldi. Samstaða í bæjarstjórn hjálpar til.“