- Advertisement -

Davíð skilur ekki sneiðina

Nú skulum við snúa plötunni við. Óvissan um eigin afkomu er mörgu fólki óþægileg. Það sér von þar sem ný forysta verkalýðsfélaga fer.

Davíð virðist ekki hafa gert sér ljóst að hann situr í einni af herbúðum óvina vinnandi stétta.

Það er ótrúlegt að jafn reyndur maður og Davíð Oddsson hafi ekki skilið sneiðina sem Sólveig Anna, formaður Eflingar, sendi honum og öðrum. Þegar hún skrifar:

„Stemmningin í herbúðum óvina vinnandi stétta er ótrúleg,“ á hún örugglega ekki bara við Hörð Ægisson á Fréttablaðinu. Óvinir vinnandi stétta er ekki bara á Fréttablaðinu. Þeir eru einnig í Borgartúni 35 og á ritstjórnarskrifstofu Moggans.

Það þarf ekki að leita lengi. Í leiðara Davíðs í dag, sem er jafnvel skrifaður á sama tíma og mbl.is skrifaði fréttina um að Sólveig Anna hafi „hjólað í ritstjóra Markaðarins“ stendur þetta, sem dæmi:

„For­ystu verka­lýðshreyf­ing­ar­inn­ar hlýt­ur auðvitað að vera full­ljóst að ef samið verður um kjör sem eru um­fram það sem fyr­ir­tæk­in í land­inu geta staðið und­ir verða af­leiðing­arn­ar upp­sagn­ir og jafn­vel gjaldþrot margra fyr­ir­tækja.“

Á móti ber að skrifa að ef samið verði um lægri laun en duga fólki til framfærslu og til fjárhagslegs öryggis er ekki til neins barist.

Svo skrifar Davíð: „Óviss­an er óþægi­leg fyr­ir fyr­ir­tæk­in í land­inu.“ Nú skulum við snúa plötunni við. Óvissan um eigin afkomu er mörgu fólki óþægileg. Það sér von þar sem ný forysta verkalýðsfélaga fer.

Víst er að áróður Harðar Ægissonar og Davíðs Oddssonar truflar ekki þá vegferð.

Sólveig Anna Jónsdóttir: „Þegar við höfum hrist af okkur hryllinginn sem vaknar við árásirnar og ádrepurnar hljótum við þessvegna að geta glaðst örlítið…“

„Stemmningin í herbúðum óvina vinnandi stétta er ótrúleg. Henni verður ekki lýst öðruvísi en sem sturlaðri. En í sturluninni opinberast sannleikurinn um innrætið. Þegar við höfum hrist af okkur hryllinginn sem vaknar við árásirnar og ádrepurnar hljótum við þessvegna að geta glaðst örlítið, í þeirri trú að sannleikurinn hjálpi við að gera okkur frjáls og að fyrsta skrefið í átt að frelsi sé að viðurkenna sannleikann um þá sem styðja áframhaldandi yfirráð auðstéttarinnar yfir vinnuaflinu á Íslandi. Sannleikann um fólk sem getur frekar séð fyrir sér heimsendi en jöfnuð og réttlæti. Það er enginn smá sannleikur,“ þannig byrjaði mögnuð grein Sólveigar Önnu.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: