
Hér á eftir eru nokkur brot af nýrri grein Þorsteins Pálssonar, sem hann skrifar á eyjan.is. Greini fjallar um kosningarnar 29. ágúst. Hér er öll greinin.
Greinin byrjar svona:
„Og sérstaklega væri mér það kærkomið, ef þú vildir lina svolítið á ofsóknum þínum gegn draugunum, því að þeir munu vissulega verða vorir einu hjálpendur, þegar vér leggjum bátum vorum upp að bryggjum eilífðarlandsins.“
Þannig skrifaði Þórbergur Þórðarson í bréfi til Halldórs Laxness árið 1952.
Einhverra hluta vegna finnst mér þessi gamli texti ríma vel við boðskap tveggja öndvegis atvinnurekenda, sem vitnuðu í Morgunblaðinu í byrjun mánaðarins gegn því að þjóðin sjálf fái að ákveða að halda áfram aðildarviðræðum við Evrópusambandið og gegn því að hún fái svo síðar að taka endanlega ákvörðun um fulla aðild.
Ögn síðar segir:
Annar þessara heiðursmanna er Kristófer Óliversson eigandi Center hótelkeðjunnar.
Að eigin sögn hefur hann hækkað laun á undanförnum árum langt umfram það, sem reksturinn ræður við. En draumur hans er að búa í efnahagsumhverfi þar sem stjórnvöld vinda sjálfkrafa ofan af slíkum samningum með gengislækkunum.
Stundum er þetta kallað pilsfaldakapitalismi. En mér er nær að halda að ræstingakonan, sem er andlag umræðunnar, upplifi þetta fremur sem nútíma draugagang.
Í grein ÞP er meira að finna um viðbrögð Kristófers.
Aftur að greininni: Hinn heiðursmaðurinn er Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri fasteignarisans Heima, sem að stórum hluta er í eigu lífeyrissjóða. Hann leigir út fasteignir, mest til fyrirtækja.
Draumaheimur hans er að geta haldið áfram að gera leigusamninga í verðtryggðum krónum. Sá sérstaki gjaldmiðill er þeirrar náttúru að halda alltaf verðgildi sínu. Hann virkar því fyrir leigusala sem sjálfvirk tekjumulningsvél.
Að endingu kemur lokakafli greinar Þorsteins:
Eins og Þórbergur bað Laxness um að lina ofsóknir sínar gegn draugum biðla þeir félagar nú til kjósenda um að láta af vantrú á draugasögur. Boðskapur þeirra er: Draugarnir verða vorir einu hjálpendur þegar þjóðin leggur bátum sínum upp að bryggjum þjóðaratkvæðagreiðslunnar.