- Advertisement -

Einstefna í kjörbúðum

Viðar Eggertsson skrifaði þennan fína pistil:

Viðar Eggertsson.

Ég reyni eftir fremsta megni að fækka ferðum mínum og stytta viðverutímann þegar ég fer í kjörbúð. Ég reyni líka að velja búð sem er ekki of lítil og þröng og fara eins snemma morguns og mögulegt er. Spritta mig og set upp einnota hanska.

En allt kemur fyrir ekki. Mér finnst ég vera í stöðugri lífshættu í þessum búðum. Ég þarf líklega að taka með mér 2ja m. langt prik næst til að halda „æstum aðdáendum“ mínum í skefjum.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Í dag komst ég varla hjá að strjúkast við starfsmanninn sem taldi inn í búðina. Hann stóð alveg við innganginn. Fólk virðist ekki skilja 2. metra regluna. Það æðir um búðina með klút fyrir vitum en hangir síðan blygðunarlaust utan í manni. Starfsmenn dunda sér við að raða vörum í hillur og teppa hálfan ganginn (er virkilega ekki hægt að fylla á hillur fyrir eða eftir opnunartíma?), svo dæmi séu tekin um háskalega hegðunina í búðinni.

Ég má þó til með að taka fram að í morgun stóðu allir í röð með kerrurnar sínar í tilhlýðilegri fjarlægð frá öðrum, nema þá þurftu endilega einhverjir aðdáendur að smeygja sér með nokkurri fyrirferð á milli fólks í röðinni með tilheyrandi snertingum.

Það væri til mikilla bóta ef verslunareigendur myndu nú koma á einstefnuumferð um gangana á milli hillurekkana. Bara það væri til bóta, að ekki sé talað um ýmislegt fleira sem hægt væri að gera…

En auðvitað veit ég vel að það er til fólk sem stundar kjörbúðir til að komast í náin kynni við aðra. Ástir í kjörbúðum er ekki alveg málið núna, sko…

– Þakka þeim sem hlýddu. Munið: Hlýddu Viðari!

Myndin af konunni að planka í kjörbúð varðar ekki færsluna beint, heldur höfð hér með fyrir athygli.


Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: