- Advertisement -

Eldri borgara skortir síst efnisleg gæði

Alþingi „Það sem kemur verulega á óvart í skýrslunni er staða eldri borgara, en þeir eru sá hópur sem skortir síst efnisleg gæði,“ sagði Silja Dögg Gunnarsdóttir Framsóknarflokki á Alþingi í dag.

Silja Dögg GunnarsdóttirSilja vitnaði til nýrrar skýrslu Hagstofunnar um laun, tekjur og vinnumarkaðinn. „Í skýrslu Hagstofunnar kemur meðal annars fram að hlutfall fólks sem skorti efnisleg gæði á Íslandi lækkaði á milli áranna 2013 og 2014. Árið 2013 var þetta hlutfall á Íslandi það fimmta lægsta í Evrópu. Þegar skortur er greindur eftir atvinnustöðu skera öryrkjar sig úr, en fjórðung þeirra skorti efnisleg gæði. Hlutfallið er mun lægra meðal atvinnulausra, 12,5%, sem er samt líka of hátt. Skortur á efnislegum gæðum er tíðari meðal einstæðra foreldra og barna þeirra en á meðal annarra heimilisgerða. Þá var hlutfallið nokkuð hátt á meðal einstaklinga undir 65 ára sem búa einir, eða 15,1%,“ sagði Silja Dögg.

„Það sem kemur verulega á óvart í skýrslunni er staða eldri borgara, en þeir eru sá hópur sem skortir síst efnisleg gæði,“ sagði Silja Dögg og hélt áfram: „Þar var hlutfallið aðeins 2,3%. Sá hópur kemur meira að segja betur út en fólk í fullri vinnu, en þar mælist skorturinn örlítið meiri, eða 3,2%. Með þessu er ég ekki að segja að allir eldri borgarar hafi það stórfínt, alls ekki. Enginn ætti að líða skort á Íslandi. Og á bak við hverja einustu prósentu er einstaklingur.“

„Umræðan um almannatryggingar hefur verið hávær að undanförnu. Við erum sammála um að við eigum að gæta okkar minnsta bróður. Þess vegna er mikilvægt að við byggjum á öruggum upplýsingum og beinum aðstoðinni til þeirra sem þurfa mest á henni að halda,“ voru lokaorð Silju Daggar Gunnarsdóttur á Alþingi í dag.

Þú gætir haft áhuga á þessum

Auglýsing

Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: