- Advertisement -

Er Sólveig Anna skemmdarvargur eða er það kannski bara Davíð og Mogginn?

Sigurjón Magnús Egilsson:

Harði stálhnefinn er kominn á loft og á eftir að vera áberandi í komandi baráttu. Það verður að laga afkomu margra Íslendinga. Mogginn á eftir að þvælast fyrir. Ekki Sólveig Anna.

Leiðari Mogginn undirbýr komandi viðræður um nýja kjarasamninga. Að venju kann Mogginn það best að ráðast að persónum fólksins sem ber þær skyldur að laga og leiðrétta laun þess fólks sem bágast hefur það:

„Þegar Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir fór í sitt reglu­bundna verk­fall fyrr á ár­inu áttuðu flest­ir sig á að breyta þarf fyr­ir­komu­lagi kjaraviðræðna.

Það verður ekki leng­ur við unað að óá­byrg­ir skemmd­ar­varg­ar haldi kjaraviðræðum í helj­ar­greip­um með því að neita að taka þátt í at­kvæðagreiðslum eins og í ljós kom í Efl­ing­ar­verk­fall­inu á út­mánuðum.“

Þú gætir haft áhuga á þessum

Eftir áralanga gíslingu Moggans í klóm útgerðarinnar…

 Ritstjórinn hefur verið í óstuði. Hann sækir þetta í Viðskiptablaðið. Síðan hristi hann af sér slenið og leggur þetta til málanna:

„Þar hafi rík­is­sátta­semj­ara skort heim­ild til að láta greiða at­kvæði um miðlun­ar­til­lög­ur, sem hefði verið betri leið en lög til að leysa „vinnu­deilu efna­manna úr stétt flug­um­ferðar­stjóra.

Slíkt frum­varp var samþykkt í þing­flokk­um stjórn­ar­flokk­anna í vor. En af ein­hverj­um óskilj­an­leg­um ástæðum kaus Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son fé­lags­málaráðherra að leggja það ekki fram á þingi. Það gerði hann að ósk ófriðarafl­anna inn­an verka­lýðshreyf­ing­ar­inn­ar.

Það voru dýr­keypt mis­tök eins og komið hef­ur á dag­inn […] Hefðu stjórn­ar­flokk­arn­ir hug­rekkið til að klára málið hefði það verið gert. Hug­leysi þeirra á eft­ir að reyn­ast dýr­keypt.“ Fyr­ir vikið hef­ur rík­is­sátta­semj­ar­inn eng­in verk­færi nema vöfflu­járnið og er ófært að gegna hlut­verki sínu.“

Það ætti ekki að koma á óvart að lesa svona texta. Eftir áralanga gíslingu Moggans í klóm útgerðarinnar og Davíðs kemur þessi skoðun ekkert á óvart.

Harði stálhnefinn er kominn á loft og á eftir að vera áberandi í komandi baráttu. Það verður að laga afkomu margra Íslendinga. Mogginn á eftir að þvælast fyrir. Ekki Sólveig Anna.


Tengdar fréttir sem þú gætir haft áhuga á að lesa: