
Sigurjón Þórðarson þingmaður Flokks fólksins skrifar:
„Það var kómískt þegar fyrrum utanríkisráðherra Gunnar Bragi sagði ESB-umsókninni upp með yfirlýsingu á Facebook.
Nú tíu árum síðar þá segist Úrsúla í Evrópusambandinu enn vera með í vinnslu umsókn Íslands að ESB.
Þegar skoðaður er listi yfir þjóðir sem hyggja á inngöngu í bandalagið þá er Ísland hvergi að finna heldur eftirfarandi ríki:
Albanía, Georgía, Moldovía, Ukraína, Albanía, Bosnía-Herzegovína, Kosovo, Norður Makedonía og Svartfjallaland.
Það er því ljóst að ESB metur Ísland ekki lengur með gilda aðildarumsókn og því er yfirlýsing Úrsúlu von der Leyen á einhverjum misskilningi byggð.
Þegar farið er yfir þennan lista yfir þær þjóðir sem eru í biðröðinni eftir inngöngu þá verður það að segjast eins og er að það getur varla þjónað hagsmunum Íslands að bindast nánari böndum helstu púðurtunnum álfunnar.“