
Sigurjón Magnús Egilsson:
Eftri fjögur ár verður Sjálfsætðisflokkurinn eitt hundrað ára gamall. Eins og staðan er nú er nokkuð víst að hvorki Jens Garðar né Guðrún Hafsteinsdóttir formaður vermi þá hásætin í Valhöll.
Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálffstæðisflokksins, lætur eins og honum sé ekki brugðið þegar fylgi flokksins hans á Norðurlandi mælist aðeins 8,8 prósent.
Hann finnur ekki til ábyrgðar eða sektar. Segist þess fullviss um að fylgið skili sér með haustinu. Þegar útgerðirnar borga ögn meira í veiðigjald en þær hafa gert.
Halda má að varaformaðurinn sé ekki með öllum mjalla. Núverandi forysta flokksins er að keyra hann í djúpan öldudal. Þar sem hann hefur ekki áður verið.
Lengi getur vont versnað.
Eftri fjögur ár verður Sjálfstæðisflokkurinn eitt hundrað ára gamall. Eins og staðan er nú er nokkuð víst að hvorki Jens Garðar né Guðrún Hafsteinsdóttir formaður vermi þá hásætin í Valhöll.
Lengi getur vont versnað. Formannstíð Bjarna Benediktssonar var þyrnum stráð og fylgi hrundi af flokknum. Hann hélt flokknum þó lengst af í ríkisstjórn. Nú er flokkurinn í eyðimerkurgöngu.
Jens Garðar grípur í visnað hálmstrá þegar hann segist viss um að með hækkandi veiðigjaldi komi fylgið til baka. Víst er að það þarf meira til, miklu meira.
-sme